Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
HIGH Attacks Viðskiptablaðið

Ísraelar hafa lagt jarðefnaframleiðslu Írana í rúst

This article describes a kinetic military attack by Israel targeting Iran's critical energy infrastructure, specifically its petrochemical production facilities. The attack vectors include airstrikes on key plants in Asaluyeh and Mahshahr, which have reportedly crippled a significant portion of Iran's oil-based chemical exports. The article does not contain information on a software vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Ísraelar réðust í dag á stærsta jarðefnaframleiðslusvæði Írans, að sögn varnarmálaráðherrans Israel Katz. Katz segir að Ísrael muni halda áfram árásum á íranska innviði til að svara árásum gegn ísraelskum borgurum. Verksmiðjurnar eru í Asaluyeh og framleiða um 50% af jarðefnaafurðum landsins. Með fyrri árás í Mahshahr segir Katz að Ísrael hafi nú lamað stöðvar sem standa undir um 85% af útflutningi efnaframleiðslu sem byggi á olíu. Má þar nefna efni í plast og gúmmí. Á sama tíma þrýsta Bandaríkin og milligönguaðilar á um 45 daga vopnahlé sem gæti leitt til varanlegs enda stríðsins. Bandarískir embættismenn segja að líkurnar á árangri séu enn litlar. Olíuverð er stöðugt en mjög hátt. Brent olía stendur í 109 dölum. Hlutabréf á Wall Street hafa hækkað lítilega í dag. Ísrael sagðist einnig hafa drepið njósnastjóra írönsku byltingarvarðarins og yfirmann þeirrar einingar byltingarvarðarins sem embættismenn segja að beri ábyrgð á að skipuleggja árásir gegn Ísraelsmönnum og Bandaríkjamönnum um allan heim. Ísraelar hafa einnig ráðist á þrjá flugvelli í Teheran og eyðilagt herþotur, þyrlur og önnur vígtól Írana. Donald Trump er sagður ætla að halda blaðamannafund klukkan 18 í dag. Trump hótaði að eyðileggja allt raforkukerfi Írans og sagði í viðtali við The Wall Street Journal í gær að Íran „muni ekki hafa nein raforkuver og þeir munu ekki hafa neinar brýr standandi“ ef samkomulag um að opna Hormússundið á ný næst ekki fyrir þriðjudagskvöld.

Share this article