Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Olíuverð hækkaði þegar markaðir voru opnaðir í Asíu

  • What: Oil prices increased after Asian markets opened
  • Impact: Global oil markets reacted to geopolitical tensions
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ol­íu­verð hækk­aði þegar mark­að­ir voru opn­að­ir í Asíu Markús Þ. Þórhallsson Olíutankar í japönsku höfuðborginni Tókíó. EPA / FRANCK ROBICHON Verð á West Texas Intermediate hráolíu hækkaði um 7,5 prósent þegar Asíumarkaðir voru opnaðir upp í rúmlega 90 bandaríkjadali tunnan. Hækkunina má rekja til ásakana Írana um að Bandaríkin hafi rofið skilmála vopnahlés með árás á íranskt flutningaskip á Ómanflóa. Verðið á Brent-Norðursjávarolíu hækkaði minna eða um 6,5 prósent upp í 96,27 dali tunnan. Fyrir 35 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Búlgaría Flokka­banda­lag fyrr­ver­andi for­seta hlýtur meiri­hluta þing­sæta sam­kvæmt út­göngu­spám Útlit er fyrir að flokkabandalag fyrrverandi forseta Búlgaríu fái 44 af hundraði atkvæða í þingkosningum dagsins. Það fengi þá meirihluta þingsæta. Aðrir flokkar fá mun lægra hlutfall atkvæða. Forsetinn fyrrverandi hefur lýst yfir sigri. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær „Það má ekki keyra of hratt í sím­an­um“ Börnin á Ystakletti í Vestmannaeyjum gripu til sinna ráða þegar þau sáu að ekki fóru allir ökumenn eftir umferðarreglunum og sendu lögreglunni bréf. Lögreglan vonar að bílstjórarnir bæti ráð sitt. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kína Róbót­ar spreyttu sig í hálfmara­þoni Nokkrir róbótar tóku þátt í hálfmaraþoni á tæknisýningu í Beijing í dag. Sá fljótasti var á skemmri tíma en heimsmet manna í greininni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hóta við­brögð­um við árás Banda­ríkja­hers á flutn­inga­skip Íranar hóta hörðum viðbrögðum við árás bandarísks herskips á flutningaskip á Ómanflóa. Bandaríkjaforseti segir hermenn hafa farið um borð til að kanna farm skipsins. Írönsk stjórnvöld segjast ekki ætla að ræða frið við Bandaríkin. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hlutu dóm fyrir svið­setta árás á lúx­us­bíla íklædd­ir bjarn­ar­bún­ing Þrír menn í Kaliforníuríki hafa verið dæmdir fyrir tryggingasvindl. Mennirnir sviðsettu árás á lúxusbíl klæddir í gervi skógarbjarnar. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík tók for­skot­ið gegn Njarð­vík Grindavík leiðir undanúrslitaeinvígið gegn Njarðvík í Íslandsmóti kvenna í körfubolta. Grindavík vann 81-87 sigur en leikið var í Njarðvík í kvöld. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Odda­leik­ur af bestu sort og Valur í und­an­úr­slit Valur fór áfram í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir sigur gegn Keflavík í oddaleik, 90-76. Leikurinn var nokkuð jafn en Valsmenn stungu gestina frá Keflavík af í fjórða leikhluta. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Hug­ar­fars­breyt­ing orðið í hjálp­ar­starfi Hugarfarsbreyting hefur orðið í hjálparstarfi að mati formanns alþjóðastjórnar SOS-barnaþorpanna. Ekki sé nóg lengur að leggja til peninga heldur þurfi hjálparsamtökin að sýna fram á að það sem þau geri hafi áhrif. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Hundar á starfs­manna­skrá Fjöl­brauta­skóla Garða­bæj­ar Hundarnir Askur og Laddi eru á starfsmannaskrá Fjölbrautaskólans í Garðabæ og með sinn eigin tölvupóst. Hundarnir eru til aðstoðar í tímum á sérnámsdeildinni og hafa reynst einstaklega vel þar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Blaða­mað­ur segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um ís­lensk­an sjáv­ar­út­veg Blaðamaður Berlingske, sem vann að umfjöllun um íslenskan sjávarútveg, segir Pál Vilhjálmsson og Pál Steingrímsson hafa sent sér fjölda erinda eftir að hann sendi Samherja fyrirspurn. Nafnarnir hafi varað hann við því að fjalla um málið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó 130.000 manns­hvörf í Mexíkó síð­ustu 20 ár Þúsundir manna hverfa ár hvert í Mexíkó. Maður sem hefur ekki séð son sinn árum saman leitar líkamsleifa ásamt öðrum ástvinum. Hann segir mikilvægt að hver og einn fái virðulegan hvílustað eftir dauða sinn. Mannshvörfin eru rakin til glæpagengja. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Segir vinnu­brögð borg­ar­inn­ar hafa ýtt undir ótta Um sex vikur eru í að Kaffistofa Samhjálpar, taki til starfa við Grensásveg. Framkvæmdastjóri segir að vinnubrögð borgarinnar hafi alið á ótta, íbúi í nágrenninu segir starfsemina þarfa - en hún þurfi að vera á öðrum stað. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Segir unnið af fullum þunga í fang­els­is­mál­un­um Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að unnið sé af fullum þunga að því að létta á yfirfullum fangelsum. Ekki sé hægt að leysa vandann samstundis. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti For­skot Ars­en­al að gufa upp — City vann tit­il­s­lag­inn Manchester City vann Arsenal 2-1 í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta rétt í þessu. Þar með er munurinn milli liðanna einungis þrjú stig og City á leik til góða. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta börn skotin til bana í Lou­isi­ana Maður skaut átta börn til bana og særði tvær konur í Shreveport í Louisiana í dag. Lögreglan felldi árásarmanninn eftir að hafa veitt honum eftirför. Sum börnin tengdust árásarmanninum fjölskylduböndum, að sögn lögreglunnar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Lög­reglu­menn grun­að­ir um að flýja vett­vang skot­árás­ar í Kyiv Sex biðu bana í skotárás í höfuðborg Úkraínu í gær og lögregla felldi árásarmanninn. Tveir lögreglumenn eru til rannsóknar vegna gruns um að þeir hafi flúið vettvang þegar skothvellir heyrðust. Þeim hefur verið vikið úr starfi tímabundið. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Ágúst vann fimm­falt og Thelma tvö­falt Ágúst Ingi Davíðsson varð í dag fimmfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvær greinar. Keppt var á stökum áhöldum í dag. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Samn­inga­menn á leið til Pakist­an – Trump segist hættur öllum vett­linga­tök­um Bandaríkjaforseti segist hafa gert Írönum sanngjarnt tilboð og heitir því að Bandaríkin eyði öllum kjarnorkuverum og felli allar brýr í Íran verði það ekki samþykkt. Fulltrúar Bandaríkjanna séu á leið til Pakistan og fundi með Írönum annað kvöld. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Breyt­ing á reglu­gerð fæli barna­lækna úr landi Félag íslenskra barnalækna vill að heilbrigðisráðherra endurskoði reglugerð um viðurkenningu á sérnámi lækna. Formaðurinn segir flesta barnalækna sækja sérnám erlendis sem fáist í mörgum tilfellum ekki viðurkennt hér á landi. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Flest­ir loft­gæða­mæl­ar á rauðu vegna sand­foks Flestir loftgæðamælar á höfuðborgarsvæðinu mæla lítil loftgæði. Sérfræðingar segja það vera vegna sandfoks, mest af söndunum á Suðurlandi. 19. apríl 2026 kl. 14:15MENNING OG DÆGURMÁL Myndlist „Maður vill svo mikið að þetta sé til“ Verslunin Bókumbók er listamannarekið sýningarrými og bókverkabúð á Njálsgötu. Sams konar búðir eru víða í stórborgum og eiga vel heima hér. Aðstandendur hennar segja að hún hefði ekki getað orðið að veruleika án stuðnings áhugasamra. 19. apríl 2026 kl. 14:01ÍÞRÓTTIR Frjálsar Júlía sló 30 ára gamalt Ís­lands­met Guð­rún­ar Arn­ar­dótt­ur Júlía Kristín Jóhannesdóttir bætti í gærkvöld Íslandsmetið í 100 metra grindahlaupi þegar hún hljóp á 13,02 sek. á háskólamóti í Bandaríkjunum. Hún bætti þar með 30 ára gamalt Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur. 19. apríl 2026 kl. 13:38ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Sprengja frá síðari heims­styrj­öld fannst í París Hugrún Hannesdóttir Diego Yfirvöld í Frakklandi rýmdu úthverfi í norðvesturhluta Parísar í dag meðan sérfræðingar aftengdu sprengju frá seinni heimsstyrjöldinni. Þúsundum var gert að yfirgefa heimili sín meðan á aðgerðinni stóð. Nær 800 lögreglumenn tóku þátt. Til stendur að eyða sprengjunni og er búist við því að íbúarnir fái að snúa aftur heim síðar í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Sprengjur frá síðari heimsstyrjöld hafa fundist reglulega síðustu áratugi, til að mynda í Þýskalandi. Hluti Parísar var einnig rýmdur og umferð um Gare Du Nord-lestarstöðina stöðvuð eftir að ein slík fannst í fyrra. Nærri 800 lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni. EPA / CHRISTOPHE PETIT TESSON 19. apríl 2026 kl. 13:29INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Létt­leiki en ekki áróður að bjóða góðan dag Telst það sem áróður á kjörstað að bjóða góðan dag? Sú spurning hefur vaknað í kringum framboðið Góðan daginn sem skilaði inn framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Talsmaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík hefur ekki teljandi áhyggjur. 19. apríl 2026 kl. 12:45INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Sterk varð­staða um eig­in­hags­muni nái inn í þing­sal Fjármálaráðherra segir völd og eiginhagsmunagæslu í sjávarútvegi koma í veg fyrir að sátt náist um breytingar á kerfinu. Hann var meðal viðmælenda í danskri grein þar sem íslenskur sjávarútvegur var sagður byggður á græðgi og pólitískum ítökum. 19. apríl 2026 kl. 11:57INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir For­eldra­hús hafa sótt um meira fé en þurfti Mennta- og barnamálaráðherra segir að Foreldrahús hafi sótt um talsvert hærri fjárveitingar en þurfi til rekstursins. Ekki hafi verið hægt að verða við því. Til stendur að loka húsinu eftir nokkra daga vegna fjárskorts. 19. apríl 2026 kl. 11:36INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn með lækna­dóp og vopn á bar í aust­ur­borg­inni Lögregla handtók karlmann á fimmtugsaldri fyrir sölu á lyfseðilsskyldum lyfjum og fíkniefnum á vínveitingahúsi í austurborg Reykjavíkur. Maðurinn reyndist vera með hníf og hnúajárn í fórum sínum. 19. apríl 2026 kl. 11:29MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Platan eydd­ist af tölv­unni“ Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við þá bræður um hljómsveitina og væntanlega plötu. 19. apríl 2026 kl. 10:52ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Frá fá­tæk­um ríkjum á víg­lín­una og kannski aldrei til baka Útlendingar sem skrá sig í Rússlandsher geta ekki skráð sig úr honum og herinn getur einhliða framlengt samninga við þá. Danskur sérfræðingur segir margt við aðstæður þeirra minna á aðstæður fórnarlamba mansals. Fjal

Share this article