Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjamenn ráðast á Kharg-eyju

  • What: US military strikes on Kharg Island
  • Impact: Strategic oil facility in Iran targeted
Read Full Article →

Bandaríkjaher réðist á fjölda skotmarka á Kharg-eyju, íranskri eyju sem liggur út af meginlandi Írans og er við Hormússund á Persaflóa. Embættismaður í Hvíta húsinu sagði við New York Times skömmu eftir árásirnar að ráðist hefði verið á hernaðarskotmörk á Kharg-eyju. JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sagði að hans skilningur, eftir samtöl við yfirmenn Bandaríkjahers, væri sá að til stæði að ráðast á hernaðarskotmörk á eyjunni. „Ég held að við séum búnir að því.“ CNN-fréttastofan segir að ekki hafi verið ráðist á olíuinnviði. Íranska fréttastofan Mehr sagði að „hinir bandarísk-zíónísku óvinir“ hefðu gert fjölda árása á Kharg-eyju og að fjöldi sprenginga hefði heyrst á eyjunni. Kharg-eyja spilar lykilhlutverk í olíuútflutningi Írana. Þar eru miklar olíubirgðastöðvar og olíuinnviðir.

Share this article