- What: A major oil and gas crisis has been declared due to the closure of the Strait of Hormuz.
- Impact: Global energy prices and inflation are expected to rise significantly.
Yfirstandandi olíu- og gaskreppa sem hefur skapast vegna lokunar Hormússundsins er „alvarlegri en kreppurnar 1973, 1979 og 2022 til samans,“ sagði Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu orkumálastofnunarinnar (IEA), í viðtali við franska dagblaðið Le Figaro . „Heimurinn hefur aldrei upplifað röskun á orkuframboði af þessari stærðargráðu,“ sagði hann í viðtalinu sem birtist í morgun. Hann sagði að Evrópulönd, sem og Japan, Ástralía og önnur ríki muni verða fyrir áhrifum stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Afleiðingarnar verði þó mestar fyrir þróunarríki, sem muni finna hvað mest fyrir hærra verði á olíu og gasi, hærra matvælaverði og aukinni verðbólgu. Aðildarríki IEA samþykktu í síðasta mánuði að losa um 400 milljónir tunna af neyðarolíuvarabirgðum sínum vegna stríðsins í Íran. Sjá einnig IEA leggur til stærstu losun neyðarolíubirgða í sögunni Í kjölfar árása Ísraels og Bandaríkjanna hefur Íran nær alfarið lokað flutninga um Hormússundið, þar sem um 20% af olíu og gasi er flutt daglega.