Alþjóða orkumálastofnunin heimilaði í dag stærstu losun á olíuforða í sögu sinni til að draga úr olíuverðhækkunum vegna árása Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. 400 milljón tunnum af olíu verður hleypt á markað úr varasjóðum. Tillagan var samþykkt af öllum 32 aðildarlöndum stofnunarinnar og samsvarar þetta um þriðjungi af öllum þeim varasjóðum sem stofnunin hefur aðgang að. Þetta er meira en tvöfalt það magn sem hleypt var úr varasjóðum árið 2022 eftir að Rússland gerði innrás í Úkraínu. Þá var 182 milljón tunnum hleypt úr varasjóðum. Olían verður seld til aðildarríkja samkvæmt aðstæðum þeirra. Ekkert G7-ríkjanna hefur enn tilkynnt skort á olíu en heimsmarkaðsverð hefur sveiflast mikið eftir að stríðið í Íran hófst. Um 15 milljón tunnur af olíu safnast fyrir daglega við Hormússund sem lokað er eftir að Íran hótaði að ráðast á skip sem sigla þar í gegn. Olían sem Alþjóða orkumálastofnunin tilkynnti að hleypt yrði á markað í dag samsvarar því magni sem flutt er frá Hormússundi á 26 dögum. Að minnsta kosti 13 flutningaskip hafa orðið fyrir árásum síðan stríðið í Íran hófst. Íran hefur áður varað við því að heimsmarkaðsverð á hráolíu eigi eftir að fara yfir 200 dollara sem væri sögulegt hámark. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði stuttu eftir tilkynninguna að hann myndi heimila notkun á olíu úr varabirgðum landsins Trump sagði ekki hversu mikilli olíu yrði hleypt á markaði úr varasjóðum en gaf til kynna að það yrði nægilegt til að ná verðum á eldsneyti í Bandaríkjunum aftur niður eftir miklar hækkanir undanfarna daga.