Ný könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið sýnir að andstaða við inngöngu Íslands í Evrópusambandið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu tólf mánuðum. Raunar hefur andstaðan ekki mælst meiri í könnunum Gallup frá árinu 2010. Fjallað verður um könnunina í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið en áskrifendur munu geta lesið fréttina undir Blöðin á vb.is klukkan 19.30 í kvöld. Andstaðan við inngöngu Íslands í Evrópusambandið er mest hjá kjósendum Miðflokksins en 90% þeirra segjast andvígir inngöngu. Alls segjast 85% kjósenda Framsóknarflokksins andvígir inngöngu og 83% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Af þessum þremur flokkum er flestir kjósenda Framsóknar hlynntir eða 10%, þetta hlutfall er 5% hjá kjósendum Miðflokksins og 3% hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Það kemur ekki á óvart að kjósendur Samfylkingarinnar eru hlynntastir inngöngu í Evrópusambandið eða 83% þeirra. Alls eru 78% kjósenda Viðreisnar hlynntir inngöngu og 49% kjósenda Flokks fólksins. Alls segjast 32% kjósenda Flokks fólksins vera andvígir inngöngu í Evrópusambandið en þetta hlutfall er 6% hjá kjósendum Samfylkingarinnar og 3% hjá kjósendum Viðreisnar. Nánar verður fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina klukkan 19.30 í kvöld.