Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mikilvægar kolmunnaveiðar framundan vegna samninga

Read Full Article →

Hjá Eskju hf. á Eskifirði hafa menn verið að „rífa og þrífa“ uppsjávarskipin að aflokinni loðnuvertíð, eins og Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarfrystihúss Eskju, segir. Þá hefur verið talsverð útskipun á loðnuafurðum. Á morgun halda tvö skip Eskju, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson í langa siglingu á gráa svæðið við miðlínu Færeyja og Skotlands, til þess að veiða kolmunna. Hlynur segir áríðandi að kolmunnaveiðarnar gangi vel því fiskveiðisamningur Færeyja og Íslands, sem veiðarnar byggja á, rennur út í ágúst og óvíst sé með öllu hvort hann verði endurnýjaður. Hlynur segir almenn gott ástand á uppsjávarmörkuðum og mjölverð hátt. Á þessu séu þó undantekningar eins og á síldarmörkuðum. Hlynur Ársælsson rekstrarstjóri uppsjávarfrystihúss Eskju. Mynd/aðsend Þar gangi verr að selja og Úkraína, sem hefur verið sterkur markaður, hefur haldið að sér höndum. Menn hafi því séð sitt óvænna og selt umtalsvert magn til Egyptalands þar sem lægra verð fæst fyrir afurðirnar. Almennt gengur yfirleitt vel að selja 350 gr. plús síld en sé staðan önnur nú, hvort rekja megi það til mikils framboðs eða annars. Japanir þrefa um verð Hjá uppsjávarfrystihúsi Eskja voru fryst um 15.500 tonn af loðnu frá skipum Eskju og Samherja. Megnið af því fer á Austur-Evrópu og Kína en nú horfir svo við að ekki hafa náðst samningar við Japani um verð. Hlynur segir að Japanir lesi fréttir og séu vel meðvitaðir um bjartar horfur fyrir næstu loðnuvertíð. Þeir ætli sér ekki að greiða of hátt verð og haldi því enn að sér höndum. Það eru nokkur íslensk uppsjávarfélög sem standa í samningaþrefi við Japani og jafnan sé það svo að þegar eitt þeirra hafi náð samningum setji það línuna fyrir aðra. Hjá Eskju voru fryst um 800 tonn af loðnuhrognum. Ekkert er enn farið að selja af þeim. Fyrir Eskju jafngildir þetta magn árssölu. Hlynur segir að ekki sé annað hægt en að vera ánægður með uppsjávarveiðar það sem af er ári. Loðnuvertíðin hafi verið góð og góðar horfur eru nú í kolmunna þótt kvótinn sé minni en áður. Kolmunnakvótinn nú er 170 þúsund tonn á almanaksárinu en var rúmlega 300 þúsund tonn á síðasta fiskveiðiári.

Share this article