Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Langt í að verð og framboð verði eðlileg á ný

Read Full Article →

Sama hvort litið var til gengis hlutabréfa eða olíuverðs í dag, þá voru sveiflur áberandi. Gengi á hlutabréfamörkuðum hækkaði, olíuverð lækkaði og sömu sögu var að segja af gengi dollarsins. Allt vegna vopnahlés í Íran og jafnvel þótt verulegar efasemdir væru um hvort það héldi. Breytinganna vegna stríðsins hefur orðið vart á Íslandi, einkum þar sem bensínlítrinn hefur hækkað um að meðaltali þrjátíu krónur frá í byrjun mars. Undir kvöld var ekki að sjá að það hefði nokkuð lækkað. && Í Evrópu er farið að gæta skorts, en ekki hér, að sögn Þórðar Guðjónssonar, forstjóra Skeljungs. Íslendingar kaupi olíu frá Norðmönnum og þar sé nóg að fá, enn sem komið er, þótt verðið hafi hækkað. En það eru ekki bara bílar sem ganga fyrir eldsneyti, skip og flugvélar líka. Í upphafi stríðs var þegar skortur á þotueldsneyti og verð á því hefur hækkað meira en á öðru eldsneyti. Bogi Níls Bogason, forstjóri Icelandair, segir eldsneytiskostnað einn stærsta kostnaðarþátt félagsins og þotueldsneyti hafi nærri tvöfaldast í verði. Þótt félagið sé varið með framvirkum samningum um fjörutíu prósent af ætlaðri þörf lendi hækkanir óhjákvæmilega á ferðalöngum. Olía er ekki bara eldsneyti, hún er líka smurolía, til dæmis. Og þar hafa birgjar sumra viðmælenda fréttastofunnar varað við skorti. Þótt nægar birgðir séu víðast hvar á landinu sé meira pantað í hverri viku og sumir birgjar segist nú einungis geta afgreitt um helming þess sem pantað er. Breytist það ekki gangi hratt á birgðir – og áhrifa þess gæti víða: Skipaflotinn, bifreiðaverkstæði, verktakar, iðnaðarframleiðsla og bændur þurfa smurolíu til að halda starfsemi sinni gangandi. Og ofan á þetta allt bætist hækkandi flutningskostnaður. Flutningskostnaður við lausafrakt, til dæmis korn og áburð, og líka timbur og stál hefur hækkað um nærri helming, samkvæmt heimildum fréttastofu. Íslensku gámaflutningafélögin sögðust aðspurð einnig hafa lagt á sérstakt bensíngjald. Allt skilar þetta sér beint út í verðið – og þær hækkanir eru ekki enn komnar fram nema að litlu leyti. Í morgun biðu 187 olíuflutningaskip eftir að komast um Hormússund og umferðin var lítil. Það kann að skýrast af því að skipum og skipamiðlurum hafa borist skýr skilaboð frá Írönum: Hormússund sé lokað og þeim skipum sem þangað sigli verði grandað. Jafnvel þótt allt falli í ljúfa löð, siglingar hefjist á ný um Hormússund og átökum linni segir alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Eurasia Group að tvo mánuði taki að koma öllu aftur af stað og enn lengri tíma að lagfæra skemmda innviði. Á meðan gætir áhrifa á verð og framboð alls konar varnings. Orkumálastjóri Evrópusambandsins orðaði þetta með afgerandi hætti í marslok. Orkuinnviðir á átakasvæðinu væru verulega laskaðir og jafnvel þótt friður ríkti frá morgundeginum væri ekki að sjá að ástandið yrði eðlilegt á næstunni. 187 olíuflutningaskip biðu þess í morgun að komast um Hormússund, en Íranar hóta enn að granda skipum sem þar fara um. Þótt olíuverð hafi lækkað á heimsmarkaði í dag er ekki búist við lækkunum til neytenda eða að ástandið verði eðlilegt á næstunni.

Share this article