Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hætta á sárs­auka­fullri aðlögun án breytts módels

Read Full Article →

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á aðalfundi Seðlabankans í dag að ætla megi að laun á Íslandi séu þau hæstu í heimi, í það minnsta þau hæstu í Evrópu samkvæmt tölum Eurostat. Á undanförnum fimm árum hafi laun hækkað um 7% á ári og kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist um 4,6% á ári að meðaltali. Hann sagði Íslendinga þurfa að spyrja sig hve lengi við getum viðhaldið þjóðhagslegum stöðugleika ef laun á Íslandi halda áfram að hækka langt umfram það sem gerist með öðrum þjóðum og umfram það sem samrýmist stöðugleika og verðbólgu í samræmi við markmið. „Það er nú orðin þjóðaríþrótt að bera verð á ýmsum vörum hér saman við það sem þekkist erlendis, líkt og verð á kaffibolla. Með sama hætti er mjög gjarnan spurt hvers vegna vextir á Íslandi séu hærri en þekkist meðal þjóða sem okkur er gjarnt að bera okkur saman við. Af einhverjum ástæðum gera Íslendingar ekki samsvarandi launasamanburð við aðrar þjóðir, heldur bera sig aðeins saman hver við annan.“ Sjá einnig „Þetta gerist ekki hjá nokkurri annarri þjóð“ Efast um að hægt verði að taka upp evru án breytinga á vinnumarkaði Ásgeir ræddi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og sagði mikilvægt að umræðan um tengingu við evru eða upptöku hennar fari fram á málefnalegum rökum. Hann sagði vandamál á íslenskum vinnumarkaði leysast ekki sjálfkrafa við breytingar í gjaldeyrismálum. „Evrópusambandið tekur ekki ábyrgð á efnahagsmálum aðildarlanda. Íslensk efnahagsmál eru og verða alltaf á okkar eigin ábyrgð.“ Sjá einnig ESB-aðild geti knúið um­bætur á vinnu­markaðsmódelinu Strangar reglur gildi um upptöku evru samkvæmt hinu svo kallaða ERM-II ferli þar sem ný aðildarríki verða að sýna með óyggjandi hætti fram á að þau geti haldið þjóðhagslegu jafnvægi. „Ég leyfi mér því að efast um að við getum tekið upp evru án þess að tryggja þjóðfélagssáttmála á vinnumarkaði. Og ef svo færi að evran yrði gjaldmiðill hér í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu og Íslendingar héldu uppteknum hætti við að hækka laun sín umfram það sem þekkist hjá öðrum þjóðum, þá myndi það leiða til mjög alvarlegra efnahagserfiðleika og sársaukafullrar aðlögunar.“ Hann sagði því mjög mikilvægt að átta sig á því að það þurfi að leysa hinn „séríslenska verðbólguvanda“ sama hvaða gjaldmiðill er lögeyrir á Íslandi. „Mögulega má færa rök fyrir því að fyrirheitið um upptöku evru í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu muni skapa nægilega hvata eða nægjanlegan alvarleika til þess að Íslendingar taki á sínum málum. Það verður a.m.k. mjög brýnt verkefni að tryggja aga og sveigjanleika á vinnumarkaði þegar sjálfstæð peningastefna hverfur út úr myndinni, svo sem að hægt verði að lækka nafnlaun sem viðbragð við atvinnuleysi. Það breytir því þó ekki að lausnin á núverandi stöðu, þ.e. vaxandi verðbólgu, háu olíuverði og vaxandi atvinnuleysi, liggur í samhæfðu átaki Seðlabankans, vinnumarkaðarins og stjórnvalda.“ Nálgast má ræðu Ásgeirs í heild sinni hér .

Share this article