Viðskipti | Morgunblaðið | 10.4.2026 | 23:00 Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðherrar og aðrir viðstaddir hlustuðu gaumgæfilega á ávörp á ársfundi Seðlabankans þar sem staða efnahagsmála var rædd. mbl.is/Eyþór Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ljá máls á þjóðarsátt „Orð eru til alls fyrst“ Landsbankinn spáir aukinni verðbólgu „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ » Fleiri tengdar fréttir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ætla megi að laun á Íslandi séu þau hæstu í Evrópu ef miðað er við tölur frá Eurostat. Vísar hann til þess að á undanförnum fimm árum hafi laun hækkað um 7% á ári og kaupmáttur og ráðstöfunartekjur aukist um 4,6% að meðaltali. „Íslendingar eru sífellt á faraldsfæti. Það er nú orðin þjóðaríþrótt að bera verð á ýmsum vörum hér saman við það sem þekkist erlendis, líkt og verð á kaffibolla,“ sagði Ásgeir á ársfundi Seðlabanka Íslands í gær. Frétt af mbl.is Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Hann bætti við að á sama tíma væri oft spurt hvers vegna vextir séu hærri á Íslandi en þekkist meðal þjóða sem við berum okkur saman við. „Af einhverjum ástæðum gera Íslendingar ekki samsvarandi launasamanburð við aðrar þjóðir, heldur bera sig aðeins saman hver við annan,“ sagði Ásgeir. Stefnan miðlast vel Í ávarpi sínu sagði Ásgeir að framkvæmd peningastefnunnar á Íslandi væri í meginatriðum hin sama og þekkist í öðrum þróuðum ríkjum. Allir mælikvarðar sýni að stefnan miðlist vel út í fjármálakerfið. „Árangur okkar í peningamálum hefur þó ekki alltaf orðið jafn góður og vonir stóðu til. Meginástæðan er sú að við höfum ekki náð að gera það sem Bjarni Bragi [Jónsson, fv. aðalhagfræðingur Seðlabankans] lagði til árið 1982 – að tryggja virkan þjóðfélagssáttmála sem er í samræmi við 2,5% verðbólgumarkmið – og að við getum deilt því á milli okkar sem er til skiptanna hverju sinni án þess að skapa verðbólgu,“ sagði Ásgeir. Hann sagði að nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndunum væru með slíka sáttmála sem væru grundvöllurinn að jafnvægi, verðstöðugleika og lágum vöxtum. „Á Íslandi hafa allar tilraunir til þess að breyta þjóðarsáttinni í varanlegan þjóðfélagssáttmála mistekist. Kjarasamningar frá árinu 2024 áttu að gefa ákveðin fyrirheit um það sem hafa því miður ekki gengið eftir.“ Í ávarpi sínu ræddi Ásgeir einnig mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sagðist hann efast um að Ísland gæti tekið upp evruna án þess að tryggja þjóðfélagssáttmála á vinnumarkaði. „Og ef svo færi að evran yrði gjaldmiðill hér í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu og Íslendingar héldu uppteknum hætti við að hækka laun sín umfram það sem þekkist hjá öðrum þjóðum, þá myndi það leiða til mjög alvarlegra efnahagserfiðleika og sársaukafullrar aðlögunar,“ sagði Ásgeir. Hann sagði mikilvægt að umræða um gjaldeyrismál og Evrópusambandið færi fram á málefnalegum rökum. Bætti hann við að vandamál á íslenskum vinnumarkaði myndu ekki leysast sjálfkrafa með nýjum gjaldmiðli. Evrópusambandið tæki ekki ábyrgð á efnahagsmálum aðildarríkja og íslensk efnahagsmál yrðu því áfram á okkar ábyrgð. Kristrún ávarpaði fundinn Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði einnig ársfund bankans í gær þar sem hún sagði að ríkisstjórnin myndi kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum og fyrstu atvinnustefnu Íslands í dag. Kristrún sagði að með aðgerðunum væri ríkisstjórnin að leggja sitt af mörkum og um leið hvetja atvinnulífið til að leggja ríkisstjórninni lið „með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markið.“ Hún ítrekaði að óróatímar væru í gangi en þrátt fyrir það væri fráleitt að kasta inn handklæðinu, hvað þá að gefa sér að kjarasamningar muni losna í haust. Tók Kristrún fram að sér þætti ekki tímabært að setjast við kjarasamningaborðið. Hún sagðist hafa verið skýr við hlutaðeigandi aðila að ríkisstjórnin ætli ekki að efna til nýrra varanlegra ríkisútgjalda sem væru ófjármögnuð til að höggva á hnúta í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði, sérstaklega þar sem verðbólga og verðbólguvæntingar séu eins viðkvæmar og raun beri vitni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ljá máls á þjóðarsátt „Orð eru til alls fyrst“ Landsbankinn spáir aukinni verðbólgu „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Kostnaður við endurreisn óljós „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Borga 137 milljónir til ferðamanna 78% landsmanna fóru til útlanda Laufey og Sigfríð til Novum Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Origo kaupir Maven Prís tekur nú við peningum Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Origo kaupir Maven Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Prís tekur nú við peningum Ótvíræð jákvæð áhrif á markaði Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Prís tekur nú við peningum Origo kaupir Maven Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður Olíu- og hlutabréfaverð hækka Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Borga 137 milljónir til ferðamanna 78% landsmanna fóru til útlanda Laufey og Sigfríð til Novum Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Origo kaupir Maven Prís tekur nú við peningum Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Origo kaupir Maven Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Prís tekur nú við peningum Ótvíræð jákvæð áhrif á markaði Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Prís tekur nú við peningum Origo kaupir Maven Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður Olíu- og hlutabréfaverð hækka