Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samningur við Haaland framlengdur

Read Full Article →

Norðmenn þekkja flestum þjóðum betur gildi alþjóðlegrar markaðssetningar á sjávarafurðum. Gríðarlegum fjárhæðum er varið í kynningu á norskum sjávarafurðum og frægt er þegar Norðmenn komu eldislaxi inni í sushi Japana. Nú hefur Norska sjávarafurðaráðið og knattspyrnugoðið og frægasti sonur Noregs, Erling Braut Haaland, endurnýjað samstarfssamning sinn sem miðar að markaðssetningu norskra sjávarafurða. Haaland verður því áfram sendiherra norskra sjávarafurða í fram á haust 2028. Fyrri samningur var gerður í mars 2024 og segir í frétt frá Norska sjávarafurðaráðinu að samstarfið hafi aukið frægð og sýnileika Haalands en ekki síður norskra sjávarafurða um allan heim. Samkvæmt nýja samningnum mun samstarfið halda áfram fram á haust 2028. Haaland, sem er talinn einn fremsti knattspyrnumaður heims um þessar mundir, er sagður launahæstur allra knattspyrnumanna á Bretlandseyjum. Hann fær inn á bankareikninginn 500 þúsund sterlingspund í hverri viku frá liði sínu, Manchester City, tæpar 83 milljónir ÍSK, en auk þess er hann sagður hafa fengið 10 milljónir sterlingspunda á síðasta ári í greiðslur frá ýmsum aðilum í tengslum við nafn sitt og í bónusgreiðslur. Jafngóður og fyrir framan markið „Ég er mjög ánægður með að halda áfram samstarfinu við norskar sjávarafurðir. Ég er stoltur af að vera hluti af markaðssetningunni,“ segir Erling Braut Haaland. Fyrir Norska sjávarafurðaráðið snýst framlengingin um að byggja á samstarfi sem hefur styrkt alþjóðlega stöðu norskra sjávarafurða. Tengslin milli sjávarafurða, Noregs og Erlings eru sterk og eftirfylgni herferða sýnir að herferðir tengdar Haaland skila svipuðum árangri og árangur hans er fyrir framan markið. „Erling Braut Haaland veitir norskum sjávarafurðum athygli og áhrif sem fáir aðrir geta. Saman höfum við byggt upp vettvang sem lyftir norskum sjávarafurðum langt umfram það sem venjuleg herferð getur áorkað. Þetta samstarf sameinar tvö af sterkustu alþjóðlegu vörumerkjum Noregs og það skapar raunveruleg verðmæti til lengri tíma litið,“ segir Christian Chramer, forstjóri Norska sjávarafurðaráðsins.“ Nú er kannski spurning hvort Íslandsstofa og Samtök fyrirtækja í sjávarútveg grípi til svipaðra meðala og fái frægustu dóttur Íslands um þessar mundir, Laufeyju Lín Bing Jónsdóttur, til samstarfs um markaðssetningu á íslenskum sjávarafurðum.

Share this article