Innlent | Sunnudagsblað | 15.2.2026 | 11:39 Ástarlífið er í rúst! Pernille Haaland er norskur uppistandari. Hún er á leiðinni til Íslands. U ppistandarinn Pernille Haaland heilsar blaðamanni skælbrosandi þegar hann sló á þráðinn til Oslóar í vikunni og stillti á myndsímtal. Ástæða viðtalsins er sú að Pernille, sem blaðamaður hefur fylgt á Instagram lengi vel, er á leiðinni til landsins og verður með uppistand í Gamla bíói föstudaginn 27. febrúar. Enn er hægt að nálgast miða á gamlabio.is eða heimasíðu Pernille. Hún er iðin að setja innslög á samfélagsmiðla þar sem hún gerir mikið grín að Norðurlandabúum en einnig að sjálfri sér sem einstæðri konu. Sýningin sem er á leiðinni hingað heitir einmitt Saga of a Single Bitch, eða sagan af einhleypri tík. Valdeflir einhleypar konur Segðu mér aðeins frá „einhleypu tíkinni“, ertu að gera grín að sjálfri þér? „Já, ég tala um hvar ég er stödd í lífinu sem einhleyp tík sem gengur mjög illa í karlamálum. Ég segi hryllingssögur, en í Noregi eru allir bláeygðir og ljóshærðir eins og ég og ef við erum hreinskilin, gætu þeir verið skyldir mér. Ég ræði líka um pör og hvernig þau ströggla og því er ég satt að segja stundum hissa á öllum pörunum sem koma á sýningar. Í seinni tíð hefur uppistandið mitt orðið pólitískara og ég legg áherslu á hræsnina í þjóðfélögum og tala um öfgahægribylgjuna sem ríður yfir okkur núna, en geri það á mínimalískan hátt; svona eins og um væri að ræða IKEA-húsgagn. Það sem er að gerast núna í heiminum er hryllingur en ég reyni að fá fólk til að hlæja þrátt fyrir allt því hvað annað er hægt að gera og ef maður hlær með öðrum finnst manni maður ekki jafn einn í heiminum,“ segir hún. „Ég tala um einhleypar konur og reyni að valdefla þær, því stundum er talað um okkur eins og við séum komnar fram yfir síðasta söludag. En við erum svo mikið sterkari og klárari því eldri sem við erum og eigum ekki að finnast við minna virði. Ég vil koma slíkum skilaboðum til skila, bæði til kvenna og hinsegin fólks,“ segir Pernille. „Sýningin Saga of a Single Bitch er því um mína vegferð í gegnum lífið sem einhleyp kona á nýrri öld í bland við það sem er að gerast í heiminum í dag.“ Ástarlífið er í molum Pernille er með yfir 74 þúsund fylgjendur á Instagram og eru margir þeirra frá Norðurlöndunum. Pernille túrar nú um Evrópu og alls staðar mæta Norðurlandabúar á sýningar hennar, enda erum við víða. Norðmenn eru sérstaklega duglegir að mæta, en uppistandið fer fram á ensku. „Norðurlandabúar eru mjög hreinskilið fólk og láta mig oft heyra það. En það er gaman að ferðast til þessara landa og margir Íslendingar hafa sent mér skilaboð að þeir séu að koma á sýninguna. Ég er að ferðast um þessar mundir um öll Norðurlöndin og Evrópu,“ segir Pernille sem fór til átján borga í tólf löndum fyrir jól, til sjö borga í Noregi í janúar og er nú á túr og mun heimsækja um þrjátíu borgir víða um Evrópu á næstu mánuðum. Pernille kann að gera grín að sjálfri sér. „Ég elska að túra með sýninguna mína og skemmti mér vel. Ég finn það að við erum mun líkari hvert öðru en frábrugðin og grín er svo góð leið til að sameina fólk. Stór hópur af ókunnugu fólki getur séð heiminn frá mínu sjónarhorni og við getum hlegið saman. Netflix getur aldrei toppað lifandi sýningar,“ segir hún og bætir við að á sýningarnar komi alls konar fólk. „Um daginn í Noregi kom Marta prinsessa með sínum seiðmanni, í lögreglufylgd. Meira að segja kóngafólkið mætir, sem er fyndið,“ segir hún. „Ég hlakka til að koma til Íslands og held að það verði epískt kvöld!“ Þar sem þú ert alltaf á ferðinni hlýtur ástarlíf þitt vera dapurlegt, eða hvað? „Það er algjörlega í rúst! Alveg hræðilegt! Og ég sem er gröð og einmana kona! En ég þarf ekkert mann og er ekki að segja að það sé skammarlegt að vera einn, þvert á móti. Ég er sjálfstæð kona sem er ekki til í að breyta öllu mínu lífi fyrir mann, og það hræðir marga menn.“ Ítarlegt viðtal er við Pernille í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Kane fyrsti Englendingurinn Ástarlífið er í rúst! Óvenjulegur kvöldverður Vilhjálms prins sem hann kynnti fyrir börnunum Fyrrverandi orkumálaráðherra Úkraínu handtekinn Salah: Hann er einn besti leikmaður í heimi Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Kjartan kominn heim frá Suður-Afríku Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann Erfiðast að læra íslensku Dimmalimm í einangrun Jafnvel verra en að drepa mann Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Kane fyrsti Englendingurinn Ástarlífið er í rúst! Óvenjulegur kvöldverður Vilhjálms prins sem hann kynnti fyrir börnunum Fyrrverandi orkumálaráðherra Úkraínu handtekinn Salah: Hann er einn besti leikmaður í heimi Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Erfiðast að læra íslensku Interpol rannsakar árásina á Grund Vandræðagangur bótafrumvarps Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann Erfiðast að læra íslensku Dimmalimm í einangrun Jafnvel verra en að drepa mann Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri