Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vilhjálmur og evrópska gervigreindin

Read Full Article →

Nú er Evrópuumræðan komin á fullt flug í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðlögunarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, sem fram eiga að fara í ágúst. Hrafnunum hefur verið bent á að það sé athyglisvert að þeir sem helst stíga nú fram til að tala fyrir aðild Íslands að ESB séu þeir sömu og voru hvað ákafastir um að íslenskir skattgreiðendur tækju á sig Icesave-byrðarnar á sínum tíma. Sem betur fer fór þjóðin ekki að ráðum þeirra þá. Í þessum hópi eru meðal annars Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra og auðmaðurinn Vilhjálmur Þorsteinsson, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa mótmælt sjálfum sér á Austurvelli þegar svonefnd Panamaskjöl voru í hámæli. Sá síðarnefndi hefur nú sett á laggirnar vefsíðu þar sem hann setur fram skoðanir sínar á aðild Íslands að ESB sem staðreyndir, í krafti þess að gervigreind sem hann er áskrifandi að hafi staðreynt þær. Jóhann Óli Eiðsson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, lýsti yfir á samskiptamiðlum að hann hygðist gera hið sama: „Ég er að spá í að búa til heimasíðu með skoðunum mínum, láta gervigreind fact-checka þær og presentera það sem staðreyndir.“ Og hann hefur gefið fylgjendum sínum forsmekk af því sem koma skal: „Ef við tökum upp evruna þá verða engar lægðir.“ Hrafnarnir bíða nú spenntir eftir því að áhugamenn um ESB-aðlögun dusti rykið af Icesave-hákarlinum og reyni að ræða Íslendinga til fylgilags. Huginn og Muninn er einn af ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill fyrst í blaðinu sem kom út 8. apríl 2026.

Share this article