Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hæstiréttur sýknaði Hundaræktarfélagið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.4.2026 | 16:04 Hæstiréttur sýknaði Hundaræktarfélagið Í úrskurðinum var konunum vísað úr Hundaræktarfélaginu í 15 ár og þær útilokaðar frá allri þátttöku í starfi þess í jafnmörg ár. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Hæstiréttur hefur sýknað Hundaræktarfélag Íslands af kröfum tveggja kvenna um miskabætur. Ágreiningurinn laut einkum að gildi úrskurðar siðanefndar félagsins en með honum var komist að þeirri niðurstöðu að konurnar, þær Arna Rúnarsdóttir og Rúna Helgadóttir, hefðu brotið gegn nánar tilteknum ákvæðum í lögum Hundaræktarfélags Íslands, reglum félagsins um skráningu í ættbók og grundvallarreglum fyrir félagsmenn og þeim gert að sæta viðurlögum vegna þeirra brota. Fram kemur í dómi Hæstaréttar, sem féll í dag, að úrskurður siðanefndar í málinu hafi fallið í janúar 2022. Meðal annars var konunum vísað úr félaginu í 15 ár og þær útilokaðar frá allri þátttöku í starfi þess í jafnmörg ár. Þá voru þær sviptar ræktunarnafninu Gjósku og rétti til að fá afhent ættbókarskírteini í 15 ár. Kröfðust milljóna í miskabætur Konurnar höfðuðu mál til ógildingar á úrskurði siðanefndar félagsins og að félaginu yrði gert að greiða hvorri þeirra um sig miskabætur að fjárhæð 2.000.000 króna. Konurnar gerðu, hvor um sig, kröfu um málskostnað á öllum dómstigum. Sýndu ekki fram á að brotið hefði verið gegn reglum Hæstiréttur taldi að þær hefðu ekki hafa sýnt fram á að brotið hefði verið gegn málsmeðferðarreglum í lögum félagsins eða reglum siðanefndar um aðild stjórnar félagsins að málinu fyrir nefndinni, skipan hennar eða reglum um sáttatilraunir. Þær hefðu auk þess ekki sýnt fram á að málsmeðferðin hefði verið í andstöðu við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga sem giltu um málsmeðferð fyrir nefndinni samkvæmt reglum hennar. Ekkert komið fram til að hnekkja niðurstöðum nefndarinnar Þá taldi Hæstiréttur ekkert fram komið sem gæfi tilefni til að hnekkja niðurstöðum siðanefndarinnar um háttsemi Örnu og Rúnu og með hvaða hætti hún hefði verið talin fela í sér brot gegn lögum og reglum félagsins. Hvað viðurlög kvennanna varðaði féllst Hæstiréttur á þau rök siðanefndarinnar að brot þeirra hefðu verið svo ósambærileg þeim brotum sem nefndin hefði fjallað um í öðrum úrskurðum sínum að réttlætt hefði mun þyngri viðurlög en áður hefði verið beitt. Sýknað af kröfum um miskabætur Með hliðsjón af þessu, jafnræðisreglu félagaréttar og því svigrúmi sem rétturinn taldi að játa yrði almennum félögum við að túlka og framfylgja innri reglum var ekki fallist á með konunum að viðurlög þeirra hefðu verið svo þung að brotið hefði verið gegn jafnræði þeirra. Hundaræktarfélag Íslands var því sýknað af kröfu Örnu og Rúnu um ógildingu úrskurðar siðanefndarinnar. Þá var félagið einnig sýknað af kröfum um miskabætur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skórnir á hilluna hjá „Voldemort“ fótboltans Hæstiréttur sýknaði Hundaræktarfélagið Eftirrétturinn sem allir elskuðu er kominn aftur í tísku Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Segir að BBC muni segja upp 2.000 starfsmönnum Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Tekjurnar drógust saman um milljarð á einu ári Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Nýjast á mbl.is » Skórnir á hilluna hjá „Voldemort“ fótboltans Hæstiréttur sýknaði Hundaræktarfélagið Eftirrétturinn sem allir elskuðu er kominn aftur í tísku Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Segir að BBC muni segja upp 2.000 starfsmönnum Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Hissa en tjáir sig ekki um lágflugið Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“

Share this article