Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SREP-skýrslur settar saman með sexkanti

Read Full Article →

Rétt eins og annað fólk sem á sér ekki líf fylgdist Týr spenntur með streymi frá ársfundi Seðlabankans. Ræða Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra var góð og vel ígrunduð, eins og við var að búast, enda flutt af manni sem hefur einstaka yfirsýn og þekkingu á íslenskri hagsögu. Slíkar ræður eru til þess fallnar að auka trúverðugleika Seðlabankans. Ekki verður það sama sagt um ræðu Bolla Héðinssonar, bankaráðsformanns. *** Gegnum tíðina hafa ræður bankaráðsformanna Seðlabankans verið í nokkuð föstum skorðum. Það er farið yfir rekstrarárið og starfsfólki bankans þakkað eftir atvikum fyrir vel unnin störf. Bolli ákvað að gera þetta með öðrum hætti. Hann flutti fundarmönnum þau tíðindi að hagræðingin hafi verið fundin upp í IKEA á sínum tíma og spurði svo gesti hvort markviss fækkun starfsmanna í bankakerfinu, samhliða tæknibreytingum, hafi skilað sér í kjörum til viðskiptavina. *** Týr veltir fyrir sér hvort æðsti yfirmaður fjármálaeftirlitsins ætti að eiga tiltölulega auðvelt með að afla sér þeirra upplýsinga sem Bolli spurði fundarmenn út í. Það starfa jú um 300 manns í Seðlabankanum. Hann veltir jafnframt fyrir sér hvernig starfsmönnum IKEA gengur að setja saman SREP-skýrslur með sexkantinn að vopni og skila þeim reglulega til fjármálaeftirlits Seðlabankans. *** Staðreynd málsins er sú að það er fyrst og fremst ríkið sem hefur hirt til sín ágóðann af hagræðingu í bankakerfinu undanfarna áratugi. Hún hefur því að litlu leyti skilað sér til hluthafa eða viðskiptavina. Eins og fram kemur í sérblaði um ársfund Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, sem fylgir Viðskiptablaðinu þessa vikuna, hafa bankarnir greitt um ríflega 700 milljarða til ríkisins frá því að bankakerfið var endurreist. Þetta fé hefði að öðrum kosti runnið til viðskiptavina eða hluthafa bankanna. Það segir meira en mörg orð um hversu aftengdur formaður bankaráðs Seðlabankans er að eftir að hann spurði ofangreindrar spurningar fór hann að hrósa því hversu glæsileg ný viðbygging við höfuðstöðvar bankans væri, en minntist þó ekkert á að framkvæmdirnar urðu á endanum margfalt dýrari en upphaflegt kostnaðarmat gerði ráð fyrir. Hann minntist heldur ekki á þá staðreynd að rekstrarkostnaður bankans hækkaði um tæp 10% á síðasta ári. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 15. apríl 2026.

Share this article