Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spurði hvort fækkun starfs­manna hafi skilað sér til neyt­enda

Read Full Article →

Bolli Héðinsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, spurði stjórnendur viðskiptabankanna á aðalfundi Seðlabankans í dag hvort sparnaður vegna fækkunar starfsmanna þeirra á undanförnum árum hafi skilað sér til neytenda í formi lægri gjalda eða hærri innlánsvaxta. „Einu sinni fylltust afgreiðslusalir bankanna um hver mánaðamót þegar viðskiptavinir mættu með gíróseðlana til að standa í skilum fyrir eindaga. Nú eru afgreiðslusalirnir nær horfnir og það sem meira er viðskiptavinir bankanna sjá sjálfir um að greiða gíróseðlana, eða ígildi þeirra, heima hjá sér við fartölvuna eða snjallsímann,“ sagði Bolli sem tók við formennsku bankaráðs í júní sl. „Af því að hér eru í dag margir stjórnendur viðskiptabankanna þá spyr ég; hefur sú fækkun starfsmanna sem óhjákvæmilega hefur orðið með því að viðskiptavinir bankanna hafa sjálfir tekið að sér að sinna þeim störfum sem áður voru innan bankanna, hefur þessum sparnaði í rekstri verið veitt til viðskiptavinanna annaðhvort í formi lægri gjalda eða hærri innlánsvaxta?“ Sjá einnig Bolli nýr for­maður bankaráðs Seðla­bankans Í ræðu sinni sagði hann að Ikea hafi reynst almenningi mjög vel í gegnum tíðina með því að bjóða fólki að búa húsnæði sitt þeim húsgögnum sem hverjum þóknaðist, fremur en að þurfa að sitja uppi „með gömlu sófana, ættargripina frá afa og ömmu“, þar sem hússgögn urðu mun ódýrari eftir að sænska húsgagnaverslunin kom til sögunnar. „Svo sjáum við þetta núna í dagvöruversluninni. Núorðið háttar daglegum innkaupum okkar þannig að við förum sjálf að afgreiðslustöðvunum í búðunum og rennum varningnum í gegn eða gerðum það inni í búðinni á meðan á innkaupunum stóð og greiðum svo með korti. Þannig sjáum við sjálf núna um það sem starfsmenn verslunarinnar sinntu áður og því hægt að fækka í starfsliði búðanna og við það ætti vöruverð að hafa lækkað. Hvort það er raunin veit ég ekki.“ Bolli er hagfræðingur og starfar sem stundakennari við tæknifræðideild Háskóla Reykjavíkur. Ræðu hans á aðalfundi Seðlabankans má nálgast hér .

Share this article