Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lilja svarar Bolla

Read Full Article →

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, hefur svarað áhyggjum Bolla Héðinssonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, um hvort fækkun starfsmanna í bankageiranum hafi skilað sér í bættum kjörum fyrir neytendur. Í ræðu Bolla á aðalfundi Seðlabankans á fimmtudaginn beindi hann þeirri spurningu til stjórnenda viðskiptabankanna í salnum hvort sparnaði vegna fækkunar starfsmanna á undanförnum árum „sem óhjákvæmilega hefur orðið með því að viðskiptavinir bankanna hafa sjálfir tekið að sér að sinna þeim störfum sem áður voru innan bankanna“ hafi verið skilað til viðskiptavina í formi lægri gjalda eða hærri innlánsvaxta. Sjá einnig Spurði hvort fækkun starfs­manna hafi skilað sér til neyt­enda Lilja bendir í færslu á Linkedin á að verð á bankaþjónustu lækkaði um 15% að raunvirði á árunum 2018-2023, samkvæmt skýrslu starfshóps viðskiptaráðherra um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna frá árinu 2023. „Þetta er umtalsvert meiri lækkun miðað við verðlag nú þegar árið er 2026,“ skrifar Lilja. Lilja bendir á að árið 2018, fyrsta ár viðmunartímabilsins í téðri skýrslu, sé einmitt það ár sem fyrsta útgáfa apps Landsbankans fór í loftið. „Svo auðvitað veit ég að við erum ekki að hækka gjöld á sjálfstýringu, í takt við verðlag. Við veltum fyrir okkur hvort við getum einfaldað og hvort við getum breytt og fyrir hvað fólk sé að greiða.“ Lilja segir að ekki aðeins hafi verð fyrir bankaþjónustu lækkað heldur hafi stafræn þjónusta í för með sér einfaldari og aðgengilegri þjónustu fyrir neytendur. „Mér finnst þægilegra að fara og millifæra í appinu en að keyra upp í Breiðholt og millifæra í Mjóddinni. Það voru ekki færri en 862.811 heimsóknir í 34 útibú bankans á síðasta ári en það voru 52,5 milljónir heimsókna í appið. Þægilegt, ó já! Svo var það svikavaktin - hún kom í veg fyrir tjón í 75% tilvika. Harðari heimur kallar á hörku lið á svikavakt (það fær greidd laun).” Lilja, sem hefur stýrt Landsbankanum frá árinu 2017, segir að þetta sé því ekki spurning um 1 eða 0 breytu. Stafræn þjónusta sé búin til og þróuð áfram af fólki. „Það er ekki einu sinni nóg að „búa til“. Það þarf fólk til að greina í döðlur, hanna flott, útfæra vel, viðhalda, verja fyrir glæpum, kenna, kynna, breyta, laga, setja í skýrslur, lesa skýrslur, hafa eftirlit með skýrslum...... Allt þetta fólk fær borguð laun og samningar um verð fyrir hvers kyns hugbúnað og hugbúnaðarþjónustu eru nánast undantekningalaust, í öllum heiminum, verðtryggðir og uppfærast með verðlagi. Þannig að þó þjónusta sé stafræn er hún ekki ókeypis. Kröfur aukast en skilvirkni líka sem skilar sér samt í betri kjörum, en ekki gleyma að núvirða!“ Í lok færslunnar segir hún að bankinn einblíni á að veita frábæra þjónustu á eins góðum kjörum og hugsast getur á sama tíma og tryggður sé traustur rekstur til langs tíma. Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, og Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita og fyrrverandi bankastjóri Doha Bank, hrósa Lilju fyrir upplýsandi svar í athugasemdakerfi við færsluna.

Share this article