Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bankarnir búast við hærri óverð­tryggðum vöxtum

Read Full Article →

Við­skipta­bankarnir búast við að vextir á óverð­tryggðum íbúðalánum hækki á næstu sex mánuðum. Þeir gera einnig ráð fyrir að óverð­tryggð lán til fyrir­tækja hækki sam­hliða væntingum um hækkun megin­vaxta og aukinn fjár­mögnunar­kostnað. Við­skipta­bankarnir fjórir gera ráð fyrir að vextir á óverð­tryggðum útlánum til heimila og fyrir­tækja hækki á næstu sex mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri útlánakönnun Seðla­banka Ís­lands, sem fram­kvæmd var meðal við­skipta­bankanna dagana 1. til 17. apríl. Í könnuninni er meðal annars spurt um þróun fram­boðs og eftir­spurnar eftir láns­fé, breytingar á útlána­reglum, útlána­vöxtum og vaxtaálagi og horfur næstu sex mánuði. Sam­kvæmt svörum bankanna hækkuðu vextir á óverð­tryggðum útlánum til heimila á síðustu þremur mánuðum, en vaxtaálag var óbreytt. Hækkun megin­vaxta Seðla­banka Ís­lands var helsti áhrifaþátturinn, en hærri fjár­mögnunar­kostnaður hafði einnig lítils­háttar áhrif til hækkunar. Bankarnir gera ráð fyrir að vextir á óverð­tryggðum íbúðalánum hækki áfram á næstu sex mánuðum. Það skýrist af væntingum um hækkun megin­vaxta og hærri fjár­mögnunar­kostnað. Vextir og vaxtaálag á verð­tryggðum útlánum til heimila voru hins vegar óbreytt á síðustu þremur mánuðum og bankarnir gera ráð fyrir að svo verði áfram næstu sex mánuði. Eftirspurn í húsnæðislán óbreytt Fram­boð bankanna á húsnæðislánum til heimila var óbreytt á síðustu þremur mánuðum. Bankarnir búast þó við að fram­boðið aukist lítil­lega á næstu sex mánuðum. Í mars buðu allir við­skipta­bankarnir aftur upp á óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum, eftir tíma­bundið hlé á slíkum lán­veitingum í kjölfar dóms Hæstaréttar í svo­kölluðu vaxta­máli í október. Eftir­spurn heimila eftir húsnæðislánum var óbreytt síðustu þrjá mánuði, en bankarnir búast við að hún dragist lítil­lega saman á næstu sex mánuðum. Þá dró lítil­lega úr eftir­spurn eftir bíla­lánum á síðustu þremur mánuðum og bankarnir gera ráð fyrir áfram­haldandi lítils­háttar sam­drætti á næstu sex mánuðum. Reglur um bíla­lán voru rým­kaðar lítil­lega á síðustu þremur mánuðum, sam­kvæmt svörum bankanna. Það var rakið til aukinnar sam­keppni frá öðrum bönkum. Bankarnir gera hins vegar ráð fyrir að útlána­reglur um bíla­lán haldist óbreyttar næsta hálfa árið. Reglur um húsnæðislán voru óbreyttar síðustu þrjá mánuði, en bankarnir búast við að þær verði rým­kaðar lítil­lega á næstu sex mánuðum. Þeir telja jafn­framt að sam­keppni um lán til heimila aukist, bæði frá öðrum bönkum og öðrum aðilum á lána­markaði. Dregur úr eftir­spurn fyrir­tækja eftir lánum í krónum Fram­boð fyrir­tækjalána var óbreytt á síðustu þremur mánuðum og bankarnir gera ráð fyrir svipaðri þróun á næstu sex mánuðum. Hins vegar dró úr eftir­spurn fyrir­tækja eftir láns­fjár­mögnun í ís­lenskum krónum á síðustu þremur mánuðum. Bankarnir gera ráð fyrir að eftir­spurn fyrir­tækja eftir lánum í krónum dragist lítil­lega saman á næstu sex mánuðum. Þá búast þeir einnig við að eftir­spurn minni fyrir­tækja eftir lánum í er­lendum gjald­miðlum dragist lítil­lega saman. Útlána­reglur bankanna gagn­vart fyrir­tækjum voru óbreyttar á síðustu þremur mánuðum og þeir gera ekki ráð fyrir breytingum næstu sex mánuði. Bankarnir telja að sam­keppni um lán til minni fyrir­tækja verði óbreytt næstu sex mánuði, en að sam­keppni um lán til stærri fyrir­tækja aukist lítil­lega. Þar nefna þeir bæði sam­keppni frá öðrum bönkum og markaðs­fjár­mögnun. Óverð­tryggð fyrir­tækjalán hækkuðu Vextir á óverð­tryggðum útlánum til fyrir­tækja hækkuðu á síðustu þremur mánuðum. Hækkunin skýrist einkum af hækkun megin­vaxta, en einnig af hærri fjár­mögnunar­kostnaði bankanna og breytingum á reglu­verki. Vaxtaálag var óbreytt. Vaxtaálag á verð­tryggðum útlánum til bæði minni og stærri fyrir­tækja jókst lítil­lega á tíma­bilinu, en vextir voru óbreyttir. Bankarnir segja að reglu­verk hafi haft mest áhrif til hækkunar vaxtaálagsins. Vextir og vaxtaálag á lánum í er­lendum gjald­miðlum voru óbreytt á síðustu þremur mánuðum, bæði hjá minni og stærri fyrir­tækjum. Bankarnir gera ekki ráð fyrir breytingum á vöxtum og vaxtaálagi verð­tryggðra fyrir­tækjalána næstu sex mánuði. Þeir búast hins vegar við að vextir á óverð­tryggðum fyrir­tækjalánum hækki, sam­hliða væntingum um hækkun megin­vaxta og hærri fjár­mögnunar­kostnað. Þá gera bankarnir ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á lánum til stærri fyrir­tækja í er­lendri mynt hækki lítil­lega á næstu sex mánuðum vegna hærri fjár­mögnunar­kostnaðar.

Share this article