- What: A 13-year-old boy was arrested in London for allegedly attacking fellow students with a knife at Kingsbury school.
- Impact: Two boys, ages 12 and 13, are hospitalized with serious injuries.
Þrettán ára drengur var handtekinn í Lundúnum í dag grunaður um að hafa ráðist á samnemendur sína með hnífi. Tveir drengir, tólf og þrettán ára, eru þungt haldnir á sjúkrahúsi, að sögn bresku lögreglunnar. Árásin varð í Kingsbury-skólanum um hádegisbilið í dag. Drengurinn var handtekinn nokkrum klukkustundum eftir að hann yfirgaf skólann. Tildrög árásarinnar eru ókunn. Hryðjuverkadeild lögreglunnar leiðir rannsóknina en árásin hefur ekki verið skilgreind sem hryðjuverk.