Innlent | Morgunblaðið | 21.4.2026 | 12:48 Kostnaðarsamt ójafnvægi Hvorki fengust viðbrögð forsætisráðherra né fjármálaráðherra vegna fjölgunar opinberra starfsmanna. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er röng þróun á röngum tíma. Þegar einkageirinn er að kólna og störfum þar fækkar, þá er mjög varasamt að hið opinbera haldi áfram að stækka svona hratt. Það sendir röng skilaboð inn í hagkerfið og vinnur gegn þeirri viðleitni sem þarf til að ná verðbólgu og vöxtum niður.“ Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið, þegar leitað var viðbragða hennar við verulegri fjölgun opinberra starfsmanna, á meðan störfum í einkageiranum fækkar. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því á opinberum starfsmönnum hefði fjölgað um 1.250 manns frá febrúar 2025 til sama mánaðar 2026, en á sama tímabili fækkaði störfum í einkageiranum um 910. Á síðustu tveimur árum hefur starfsfólki í opinbera geiranum fjölgað um 2.116 manns. „Málið snýst ekki um fólk sem vinnur hjá hinu opinbera, heldur um pólitíska forgangsröðun,“ segir Guðrún. „Ég vil ekki tala niður opinbert starfsfólk. Gagnrýnin beinist að stjórnvöldum sem virðast ekki ráða við að stilla umfangi kerfisins í hóf þegar aðstæður kalla á aðhald. Það er stefna okkar sjálfstæðismanna að ríkið eigi að gera betur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi varað við þessu,“ segir hún. „Við höfum verið samkvæm sjálfum okkur í þessu máli. Stefna flokksins hefur lengi verið sú að umfang hins opinbera megi ekki vaxa hraðar en hagkerfið ræður við. Laun hins opinbera mega ekki leiða markaðinn. Það er veikleikamerki að ríkisstjórnin ætli nú aðeins að fækka um 200 störf á næsta ári og það er að mínu mati ekki trúverðugt svar við þróun þar sem fjölgunin nam 1.250 störfum á einu ári. Það er ekki leiðrétting,“ segir hún og bendir á að einkageirinn sé undirstaða lífskjara og tekna ríkisins. „Það eru fyrirtækin og fólkið sem starfar í verðmætasköpun sem standa undir tekjum ríkisins. Ef störfum fækkar þar á sama tíma og ríkið stækkar, þá er eitthvað komið úr jafnvægi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur einmitt áherslu á að opinber stefna eigi að styrkja samkeppnishæfni, ekki grafa undan henni. Ríkisstjórnin talar um aðhald en framkvæmir útþenslu. Hún talar um baráttu við verðbólguna en stækkar kerfið,“ segir Guðrún. Uggvænlegt „Þetta er rosaleg þróun. Það er ekki hægt annað en að setja þetta í samhengi við nýframkomin áform ríkisstjórnarinnar um að taka á mikilli fjölgun ríkisstarfsmanna sem hefur verið 19% frá árinu 2019, sem er gríðarleg fjölgun og við höfum bent á ár eftir ár að geti ekki haldið áfram,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. Áform ríkisstjórnarinnar um fækkun starfsmanna um 200 manns á ári séu ígildi 1/6 hluta fjölgunar þeirra á síðasta ári, sem sé hláleg í samanburðinum. Hann bendir á að einhverjir ríkisstarfsmenn hætti á hverju ári, m.a. vegna aldurs, en það muni ekki leiða til nettó fækkunar starfsmanna. Tilhneiging ríkisins til að vaxa sífellt sé afleit, sé litið til þróunar efnahagsmála og þeirrar skökku stöðu sem felist í betri kjörum opinberra starfsmanna en starfsfólks í einkageiranum. Þau felist ekki bara í betri launakjörum, heldur einnig betri lífeyrisréttindum og meira starfsöryggi. Segir Sigmundur Davíð að þetta sé allt til staðar enn. Skekkjan sé innbyggð sem feli í sér neikvæðan hvata fyrir samfélagið. „Æ fleiri verða á framfæri hins opinbera á meðan þeim fækkar sem þurfa að standa undir kostnaðinum,“ segir hann og nefnir að tekjuskatt nokkurra starfsmanna í einkageiranum þurfi til að greiða laun eins opinbers starfsmanns. „Þetta er uggvænlegt,“ segir Sigmundur Davíð. Áfram verðbólguþrýstingur „Nýjar tölur um þróun vinnumarkaðarins gefa skýr merki um að hagkerfið sé í kólnun, þvert á hið svokallaða verðmætasköpunarhaust ríkisstjórnarinnar. Á sama tíma og störfum hjá hinu opinbera fjölgar hratt fækkar störfum í einkageiranum, sérstaklega í ferðaþjónustu sem hefur verið einn helsti drifkraftur íslensks hagvaxtar undanfarin ár. Þegar einkageirinn heldur aftur af sér en hið opinbera heldur áfram að stækka skapast ójafnvægi sem getur reynst kostnaðarsamt fyrir hagkerfið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins. „Það er sérstaklega áhyggjuefni að störfum hafi aðeins fjölgað um 340 á milli ára, samanborið við meira en fjórfalda þá fjölgun árið áður. Slík þróun bendir til þess að fyrirtæki séu orðin varfærnari, fjárfestingar dragist saman og minni tiltrú sé á efnahagskerfinu. Fréttir af uppsögnum og minnkandi umsvifum í ferðaþjónustu styðja þá mynd,“ segir hún og bendir á að samhliða þessu hafi atvinnuleysi aukist í 7,1%, sem sé hátt í íslensku samhengi. „Ef hið opinbera heldur áfram að fjölga störfum og hækka laun á sama tíma og einkageirinn dregur saman seglin er hætta á að verðbólguþrýstingur haldist áfram mikill. Þá gætu stýrivextir haldist háir lengur en ella, sem myndi setja bæði heimili og fyrirtæki undir enn meira álag. Þetta eru því klár hættumerki fyrir hagkerfið sem stjórnvöld ættu að taka meira alvarlega en þau gera. Stjórnvöld láta reka á reiðanum,“ segir Lilja Dögg. Tekið upp í fjárlaganefnd „Það kom mér á óvart að sjá þessa miklu fjölgun opinbera starfsmanna, en gagnsæið er mjög lítið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd. Hann kveðst vera með skýrslubeiðni frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem koma mun fram á Alþingi í vikunni, þar sem m.a. verður spurt um kostnaðaraukningu ríkisins vegna styttingar vinnuvikunnar, en þó sé vitað að þar sem unnin er vaktavinna hafi kostnaður aukist. „En í kjölfar þessarar fréttar mun ég taka málið upp í fjárlaganefnd,“ segir hann og nefnir að nauðsynlegt sé að koma upp kerfi sem geri kleift að fylgjast með rekstri allra opinberra stofnana frá degi til dags. Spurður hvort hann telji að um sé að ræða í raun stjórnlausa fjölgun opinberra starfsmanna, segir Guðlaugur Þór að ekkert geti kallað á fjölgun opinberra starfsmanna um 1.250 manns á einu ári. Skýringar verði að fá á því. „Við eigum að geta fengið upplýsingar um þetta frá mánuði til mánaðar sem og um gang mála í fjárlögum, en því miður hafa menn ekki náð tökum á því. Það er skrýtið að þrátt fyrir fyrirheit um annað, þá er opinberum starfsmönnum að fjölga mjög mikið og það lítur út fyrir að vera mikið agaleysi í rekstri hins opinbera,“ segir Guðlaugur Þór. Leitað var eftir viðbrögðum forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra vegna þessa máls, en engin svör komu úr þeirra ranni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kostnaðarsamt ójafnvægi Ísland er þar í sérstöðu Sakar Íran um að hafa rofið vopnahlé mörgum sinnum Síldarminjasafnið opnar augu nemenda Fagnaði of snemma og missti af sigrinum Umræðan Homo Reykjavicus Valdníðsla Reykjavíkurborgar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljósir samningar um aðlögun Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Kostnaðarsamt ójafnvægi Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Ragnar vill breyta lögum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Kostnaðarsamt ójafnvægi Ísland er þar í sérstöðu Sakar Íran um að hafa rofið vopnahlé mörgum sinnum Síldarminjasafnið opnar augu nemenda Fagnaði of snemma og missti af sigrinum Umræðan Homo Reykjavicus Valdníðsla Reykjavíkurborgar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Hugrekkið kostaði hana lífið Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Ragnar vill breyta lögum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins sv