Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Á ekki að halda vöku fyrir fólki“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.4.2026 | 17:15 „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Síðasta eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni lauk 5. ágúst síðastliðinn. mbl.is/Árni Sæberg Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf » Fleiri tengdar fréttir Hildigunnur H.H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar, segir að almenningur eigi ekki að hafa of miklar áhyggjur í tengslum við nýtt langtímahættumat Veðurstofu Íslands fyrir hraunavá á Reykjanesskaga og á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur í matinu að tveir þéttbýliskjarnar, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi. Frétt af mbl.is Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi „Grindavík er bæði útsett fyrir mjög mikilli hættu á hraunflæði og mjög miklum líkum á gosupptökum. Staða Hveragerðis er önnur og telst einungis vera á efsta hættustigi vegna hraunflæðis,“ segir meðal annars í hættumatinu. Líkur á hraunflæði eru metnar mjög litlar til litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins en líkurnar aukast til suðausturs, rétt eins og líkur á gosupptökum. Hveragerði. mbl.is/Sigurður Bogi Velta fyrir sér varnargörðum annars staðar Spurð hversu miklar áhyggjur fólk þurfi að hafa vegna þess sem kemur fram í hættumatinu, til dæmis í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu, segir Hildigunnur: „Þetta er eitthvað sem á ekki að halda vöku fyrir fólki. Það sem við eigum að vera að setja í forgang sem samfélag er að við gerum okkur grein fyrir hættunni og hvernig við ætlum að bregðast við ef eitthvað gerist,“ útskýrir hún. „Eru einhverjar varnir sem gætu hjálpað okkur og hvernig myndum við skipuleggja þær?” Frétt af mbl.is Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Hildigunnur nefnir að ekki hafi verið búið að byggja varnargarða áður en eldgosahrinan hófst á Reykjanesskaga en að einhverjar undirstöður hafi verið fyrir hendi vegna Grindavíkur. Núna sé hægt að læra af því sem gerðist í Grindavík og eiga samtal sem byggi á upplýsingunum sem eru núna fyrir hendi til að búa til öruggara samfélag hér á landi. Frétt af mbl.is Breytt aðferðafræði við mat á ávinningi af gerð varnargarða Framkvæmdir við varnargarða. mbl.is/Eggert Jóhannesson Spurð hvort það hafi verið í umræðunni að byggja varnargarða á fleiri stöðum en í nágrenni Grindavíkur, til dæmis nálægt Hveragerði, segir hún þá spurningu hafa komið upp, enda sé hún mjög eðlileg miðað við fengna reynslu. Velta þurfi fyrir sér aðstæðum og landslagi á hverjum stað fyrir sig. „Ef þú setur varnargarð, erum við þá að leiða hraunið eitthvað annað?“ nefnir hún sem dæmi. „En það er engin spurning að þetta er eitt af því sem verður skoðað.“ Horft yfir Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Líklegast að það gjósi aftur Spurð út í skýrslu Grindavíkurnefndar, sem kveðst ekki mæla með því að skólahald hefjist í bænum í haust, eins og bæjarstjórnin áformar, segir Hildigunnur Veðurstofuna einfaldlega hafa það verkefni að greina frá hættunum sem eru fyrir hendi. „Það er atburður í gangi og líklegast sem gerist næst er að það gjósi aftur. Miðað við þau gögn sem við erum með núna þá er landris enn þá í gangi. Við höfum aldrei verið með meira magn kviku þarna undir og þá er líklegast að það gjósi og á svipuðum slóðum og hefur gerst áður. Það er hættan sem er fyrir hendi og þá er það spurningin, hvaða áhættu erum við þá til í að taka?“ greinir hún frá og nefnir að eftir að búið er að benda á hætturnar taki pólitíkin við keflinu. Frétt af mbl.is Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Frétt af mbl.is Forræðishyggja og ákvörðunarfælni Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands. Engin merki annars staðar um aukna virkni Sérfræðingar hafa sagt að næsta gos verði hugsanlega það síðasta. Ertu á sama máli? „Við sjáum að það er að hægjast á atburðarásinni og við erum að vona að það þýði að þetta sé að líða undir lok. Við getum ekki lofað því samt. Þannig að við horfum alltaf bara á gögnin sem við erum með á hverri stundu,“ segir Hildigunnur. Spurð út í stöðuna á nágrenni Hveragerðis segir hún engar aðrar eldstöðvar á Reykjanesskaga sýna merki um aukna virkni. Mánaðarlegur fundur er haldinn þar sem farið er sérstaklega yfir stöðu mála á eldstöðvunum til að geta gefið góðan fyrirvara ef merki um virkni sjást. Frétt af mbl.is Segir endalokin nálgast: „Gæti orðið áramótagos“ Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Mikil óvissa hjá Liverpool „47 kökudagar“ Helstu ráðamenn mættir á fund í Hvíta húsinu Verður ekki seldur á tombóluverði Umræðan Homo Reykjavicus Valdníðsla Reykjavíkurborgar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi „Öfgakennd forsjárhyggja“ Dónaskapur og ruddaleg framkoma ógn við lýðræðið „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Mikil óvissa hjá Liverpool „47 kökudagar“ Helstu ráðamenn mættir á fund í Hvíta húsinu Verður ekki seldur á tombóluverði Umræðan Homo Reykjavicus Valdníðsla Reykjavíkurborgar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaðarsamt ójafnvægi Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Leyndardómur aðlögunarinnar Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils

Share this article