Innlent | mbl | 21.4.2026 | 18:19 Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Hættumatið segir til um hvaða svæði eru möguleg gosupptakasvæði og hvaða svæði gætu verið útsett fyrir hraunflæði. mbl.is/Sigurður Bogi Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati » Fleiri tengdar fréttir Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar mun nýta sér langtímahættumat Veðurstofu Íslands vegna hraunavár við skipulag byggðar til framtíðar, með það fyrir augum að tryggja öryggi íbúa og innviða. Raunar var hættumatið tekið til hliðsjónar við nýsamþykkt aðalskipulag bæjarins. Hættumatið segir til um hvaða svæði eru möguleg gosupptakasvæði og hvaða svæði gætu verið útsett fyrir hraunflæði út frá gossögu svæðisins. Þetta segir bæjarstjórinn Pétur G. Markan um niðurstöður skýrslu Veðurstofu Íslands um langtímahættumat vegna hraunavár á Reykjanesskaga. Þar kemur fram að tveir þéttbýliskjarnar, Hveragerði og Grindavík, liggi á svæðum á efsta hættustigi. Skýrslan er hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum. Ekki verið að spá fyrir um gos „Það skiptir máli að þessi vandaða skýrsla er langtímagreining. Hún er ekki að segja okkur að það sé að fara að gjósa á einhverjum tímapunkti eða að líkur á gosi hafi aukist,“ segir bæjarstjórinn í samtali við mbl.is. „Það hefur alltaf verið vitað að Hengillinn er eldstöð í nágrenni okkar,“ segir hann enn fremur. Þannig styðji niðurstöður skýrslunnar við það sem þegar hafi verið vitað. Aftur á móti dýpki þær þekkingu bæjarstjórnar og almennings á mögulegum sviðsmyndum við eldsumbrot á Hengilsvæðinu í nágrenni Hveragerðisbæjar og veiti þannig tækifæri til að uppfæra viðbragðsáætlanir bæjarins í samstarfi við Almannavarnir. Nú standi til að fara í þá vinnu í kjölfar útgáfu skýrslunnar og sérstakrar skýrslu sem enn er í vinnslu um vesturhluta Árnessýslu. Þannig stefni bæjaryfirvöld að því að auka öryggi bæjarbúa í Hveragerði. Frétt af mbl.is Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Tindastóll – Stjarnan kl. 19.15, bein lýsing Einn sá eftirsóttasti á leið til Þýskalands? Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Ljúfsárt að kveðja þingið Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins Tindastóll – Stjarnan kl. 19.15, bein lýsing Einn sá eftirsóttasti á leið til Þýskalands? Barist fyrir breytingunum í nærri tvo áratugi Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaðarsamt ójafnvægi Bílvelta á Hringbraut „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils