Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heimilin sækja meira í óverð­tryggð lán í fyrsta sinn í 3 ár

Read Full Article →

Í febrúar síðastliðnum tóku heimilin ný óverðtryggð lán fyrir hærri fjárhæð en ný verðtryggð lán, umfram uppgreiðslur, í fyrsta sinn í þrjú ár. Vakin er athygli á þessu í nýrri mánaðarskýrslu HMS sem kom út í morgun. Hrein ný óverðtryggð lántaka heimila nam 5,6 milljörðum króna í febrúar en hrein ný verðtryggð lántaka heimila nam 4,1 milljarði króna. Hrein ný lántaka heimila í mánuðinum nam þannig 9,7 milljörðum króna í febrúar. Það samsvarar rúmlega 15% samdráttar milli mánaða. „Mögulegt er að samdrátturinn í hreinni nýrri lántöku í febrúar sé að hluta til vegna fárra kaupsamninga undanfarna mánuði, þar sem nokkur töf getur verið á milli undirritunar kaupsamnings og útgáfu láns,“ segir HMS. Bent er á að hlutdeild óverðtryggðra lána af útistandandi íbúðalánum til heimila hafi farið lækkandi á síðustu þremur árum, að stórum hluta vegna hás vaxtastigs. Mörg heimili hafi á þessu tímabili endurfjármagnað óverðtryggð lán sín með verðtryggðum lánum. Í febrúar síðastliðnum hafi til að mynda 34,5% allra útistandandi íbúðalána til heimila verið á óverðtryggðum vöxtum en til samanburðar var hlutfallið 56% í október 2022. Mynd tekin úr mánaðarskýrslu HMS. Upp­greiðsl­ur verð­tryggðra lána eru um­fram nýja lán­töku hjá bönk­um Í skýrslunni er einnig vakin athygli á að í febrúar síðastliðnum hafi ný verðtryggð lántaka heimila verið minni en upp- og umframgreiðslur verðtryggðra lána hjá viðskiptabönkunum í frysta sinn síðan í mars 2022. Hrein ný óverðtryggð útlán banka námu 6 milljörðum króna í febrúar en til frádráttar komu uppgreiðslur á verðtryggðum lánum fyrir 914 milljónir króna hjá þeim. Þróunin hafi þó verið önnur hjá lífeyrissjóðum í febrúar. Hrein ný verðtryggð útlán lífeyrissjóða námu 5,5 milljörðum króna í febrúar en til frádráttar komu uppgreiðslur á óverðtryggðum lánum fyrir 365 milljónir króna hjá þeim.

Share this article