Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Treystir því að hún sé að vísa okkur veginn

Read Full Article →

Það styttist óðfluga í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Þessi stærsti myndlistarviðburður heims er nú haldinn í 61. sinn og verður opnaður 9. maí og stendur yfir fram í nóvember. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og sýning hennar hefur fengið titilinn Pocket Universe og samanstendur af vídjóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Halla Harðardóttir ræddi við Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn, sýningarstjóra íslenska skálans, í Víðsjá á Rás 1. Ásta Fanney er ein af fremstu gjörningalistamönnum landsins og er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir. Unnar Örn segir hana vinna á mörkum listgreina. „Það þekkja hana margir sem skáld, aðrir sem jafnvel tónlistarmann og svo sumir sem myndlistarmann. Hún vinnur í ólíka miðla með bæði myndir, texta og svo auðvitað performansinn,“ segir hann. Hún sé marglaga listamaður sem sé ekki auðvelt að koma í eitt form. „Það er held ég alltaf kostur þegar maður er skapandi.“ Samstarf þeirra þriggja hófst í byrjun síðasta árs og Unnar Örn segir Ástu Fanneyju vilja vera með teymi í kringum sig. „Það finnst mér líka einkennandi fyrir hana, að vera með hóp með sér. Hún virkjar einhvern veginn alla í þessu ferli sem hún er í.“ Allt opið Samstarfið byggist að miklu leyti á samtali og Unnar Örn segir Ástu Fanneyju vera brunn hugmynda. „Það koma flæðandi frá henni hugmyndir. Við Margrét og Ásta erum búin að vera í samtali um hvaða form sýningin tekur og svo auðvitað lendir það á einhverjum tímapunkti og svo heldur það áfram og er enn þá í vinnslu, getum við sagt. Það er allt opið í því.“ Treystir áhorfandanum 100% Margrét hafi unnið með Ástu Fanneyju áður en það hafi Unnar Örn ekki gert í þessu hlutverki. Honum þykir því gaman að hafa fengið að kynnast vinnuferli hennar sem listamanns. „Hún vinnur mikið með upplifun áhorfandans og hún treystir áhorfandanum alveg 100 prósent. Það er mjög merkilegt.“ „Auðvitað er hún alltaf að vinna á þessum mörkum tungumálsins og hljóða og skilnings og túlkunar en svo skilur hún mjög mikið eftir hjá okkur, áhorfendunum, til þess að upplifa og nálgast hennar listsköpun.“ Getum leitað inn á við til að finna lausnir Í kynningu frá Myndlistarmiðstöð segir að sýningin fjalli öðrum þræði um það hvernig „ímyndunaraflið og vonin opna á margs konar möguleika til aðgerða og hugarfarsbreytinga, sérstaklega á tímum óstöðugleika og óvissu. Tilviljanir og lukka fléttast um sýninguna og birtast í verkum þar sem leikur ræður för, kunnuglegar reglur eru gefnar í skyn en úrslitin eru óþekkt. Möguleikinn á að snúa aftur á byrjunarreit er alltaf til staðar.“ Þegar Halla spyr hvort þörf sé á þessari hvatningu einmitt núna segir Unnar alltaf eitthvað vera í gangi úti í hinum stóra heimi. „En ég held að Ásta sé svolítið með þessum titli, Pocket Universe, að benda okkur á að horfa á nærumhverfið okkar, jafnvel í vasann hjá okkur. Hvernig við getum í grunninn leitað inn á við til þess að finna lausnir og svör.“ „Ég held að við þurfum á því að halda og ég held að hún sé að beina okkur í mjög ákveðna átt með það. Ég treysti henni til þess að hún sé að sýna okkur veginn að einhverju leyti.“ Vona að fólk taki sér tíma og staldri við Íslenski skálinn er þetta árið á eyjunni St. Pietro di Castello í göngufæri við tvö helstu sýningarsvæði tvíæringsins, Giardini og Arsenale. Margrét var í Feneyjum með Ástu Fanneyju þegar Halla ræddi við hana. „Þetta er eiginlega alveg frábær staðsetning. Maður getur gengið frá Arsenale til Giardini, ef maður ætlar að ganga á milli þessara aðalsvæða þá gengur maður eiginlega bara fram hjá íslenska skálanum.“ Það hafi verið ýmsar ástæður fyrir því að þessi staðsetning varð fyrir valinu en einna helst var hve góð orka umkringdi hann. Skálinn er gamalt bátaskýli sem notað var sem bátaverkstæði og honum tilheyrir einnig útisvæði við bátahöfn. „Svo er annað rými sem er dálítið eins og mjög hrátt gallerírými sem við köllum playroom. Við skiptum sýningunni dálítið í tvennt, eða jafnvel þrennt. Bátaskýlið er eins og sýning en inni í hinu rýminu er meira líf, lifandi gjörningur sem verður yfir allt tímabilið. Síðan er útisvæðið líka partur af sýningunni.“ Hún segir orkuna mjög góða þar sem haf og himinn mætist og bjóði upp á endalausa möguleika fyrir listamann eins og Ástu. Þær vona að fólk gefi sér góðan tíma við sýninguna og jafnvel staldri við í rýminu því þar sé svo hlý orka. Góður andi í borginni þrátt fyrir pólitískan óróa Margrét segir titil sýningarinnar, Pocket Universe, áminningu til fólks um að það sé með ljós í vasanum, að með jákvæðu hugarfari sé hægt að breyta miklu í eigin lífi og annarra, hafa áhrif á fólkið í kringum sig með góðri nærveru. Pólitískur óróleiki hefur einkennt aðdraganda Feneyjatvíæringsins út á við þar sem viðvera Ísraels, Rússlands og Bandaríkjanna hefur skapað úlfúð, en Margrét segir þær Ástu ekki hafa fundið fyrir slíku í borginni sjálfri. „Það mun væntanlega breytast mikið á tvíæringnum sjálfum þegar það opnar. Auðvitað hefur þetta allt saman áhrif.“ „Maður veit í rauninni ekkert alveg hvað mun gerast. Það verða örugglega mikil mótmæli og alls konar, sem hefur oft verið áður en mögulega verður það í einhverju hámarki í ár. Það á bara eftir að koma í ljós.“ Hún segir góðan anda ríkja á meðal listafólksins sem er í borginni og setur upp sýningar. Það sé þó merkilegt að sjá hve mikið af þeim listamönnum sem taka þátt í ár eru gjörningalistamenn, mun meira en tíðkast hefur áður. Umfjöllunarefni skálanna virðist að miklu leyti vera um stöðuna í heiminum en Ásta, og fleiri listamenn, nálgast það út frá öðru sjónarhorni heldur en „við og hinir“. „Persónulega finnst mér það mjög mikilvægt og gott, að það sé ekki verið að setja þetta upp í „við og hinir“.“ Uppsetningin er langt á veg komin og Margrét segir þær vera með frábært teymi, bæði frá Íslandi og tvíæringnum sjálfum. „Það sér alveg fyrir endann á þessu öllu saman.“ Sýningarstjórar segja sýningu Ástu Fanneyjar á Feneyjartvíæringnum minna áhorfandann á að þeir séu með ljósið í vasanum og geti haft áhrif á líf sitt og annarra. Ásta treysti áhorfandanum 100% og hann treysti henni. Rætt var við Margréti Áskelsdóttur og Unnar Örn í Víðsjá á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article