Menning | mbl | 6.5.2026 | 15:10 Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Ásta Fanney ávarpar gesti opnunarinnar. mbl.is/Einar Falur Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum, helstu myndlistarhátíð heims sem hefur stundum verið kölluð Ólympíuleikar listanna, var opnaður nú síðdegis. Framlag Íslands á hátíðinni í ár er sýningin „Pocket universe“ eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur en hún samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum og fjallar um það hvernig ímyndunaraflið og vonin opna á margs konar möguleika til aðgerða og hugarfarsbreytinga, sérstaklega á tímum óstöðugleika og óvissu. Margrét Áskelsdóttir er sýningarstjóri skálans í samstarfi við Unnar Örn myndlistarmann. Opnunin var vel sótt en listamaðurinn segir að það sem sé efst í huga á þessari stundu sé hvað fólk er fallegt. Fjölmenni var á opnuninni. mbl.is/Einar Falur Margir komið inn með góða orku Tilkynnt var að sýning Ástu yrði framlag Íslands í lok árs 2024 en spurð hvernig tilfinningin sé að sjá gesti nú streyma inn á sýninguna sem hún hefur unnið að í allan þennan tíma segir hún það nokkuð náttúrulegt. „Það er svo áhugavert af því að í öllu ferlinu þá er alls konar fólk búið að koma að þessu verkefni og rosalega margir búnir að vera að hjálpa, bæði ættingjar og vinir og ókunnugt fólk,“ segir Ásta og bætir við: „Þannig að núna þegar fólk er að streyma inn þá virðist það bara vera svolítið náttúrulegt af því að fólk er búið að vera að streyma inn í verkefnið og koma með einhverja góða orku og svakalega hjálpsemi. Ég er svo þakklát fyrir bara manneskjur, hvað manneskjur geta verið fallegar.“ „Ég er rosalega þakklát fyrir að geta komið með einhverjar hugmyndir sem er kannski frekar erfitt að framkvæma eða erfitt að setja í gang en svo finnur maður út úr því. Það er líka svolítið gott að gera hlutina bara eitt skref í einu og þá kemst maður áfram og kemst kannski á óvæntan stað sem gefur kannski af sér eitthvað ennþá skemmtilegra heldur en þangað sem var haldið,” segir listakonan að endingu. Sýningin samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum mbl.is/Einar Falur Hefur komið í ljós síðustu mánuði Myndlistarmiðstöð framleiðir sýninguna en Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede tók við sem forstöðumaður hennar í nóvember. Hún segir dásamlegt að sjá sýninguna loks opna. „Ég er pínu meyr. Þetta er svo langt ferli og stórt verkefni. Þegar ég sé þetta gerast, allt þetta fólk sem kemur að þessu verkefni, það er ótrúlega mikil gleði bara að fá að fagna með öllu þessu fólki, þetta er bara æðislegt. Þetta er tveggja ára ferli, ég kom inn í þetta í nóvember og þetta er bara búin að vera gríðarleg keyrsla. Þá segir Cecile eðli verka og vinnuaðferða Ástu Fanneyjar líka slíkt að lokaútkoman liggi ekki fyrir þegar ferlið hefst. „Allt kemur í ljós undir smá pressu svo að það er ekki hægt að skipuleggja sig svo langt fram í tímann. Þannig að í rauninni hefur þetta verið að raungerast bara síðustu mánuði.“ mbl.is/Einar Falur Íslenski skálinn. mbl.is/Einar Falur Gregory Volk og Auður Jörundsdóttir. mbl.is/Einar Falur Karen Ósk Sigurðardóttir, Pétur Thomsen og Hlynur Helgason. mbl.is/Einar Falur Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Boðið upp á sirkus og salsa í sundi Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allir spennast upp þegar talið berst að draugum“ Garg bókabúð fær eina milljón í styrk Ómþýtt... en oddhvasst Ný stikla úr Ódysseifskviðu frumsýnd „Við settum markið hátt og það tókst“ Kaldir á ísnum, sjóðheitir í klefanum Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kaldir á ísnum, sjóðheitir í klefanum Ný stikla úr Ódysseifskviðu frumsýnd Dómnefnd Feneyjatvíæringsins segir af sér Rocky Horror valin athyglisverðust Fyrrum söngvari Santana látinn Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Skýrar myndir sem nísta hjartað Eins konar æði gripið Íslendinga Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Danska konan skuldar laun Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu „Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér friðinn“ Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Áhugaverð viðtöl Menning Ómögulegt að gera þetta svona sjaldan Menning Sannleikurinn má ekki spilla góðri sögu Menning Sorgin er allt um kring Menning Þarf dauðaþögn til að skrifa Menning Reynir að vera sem ósýnilegust Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Boðið upp á sirkus og salsa í sundi Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allir spennast upp þegar talið berst að draugum“ Garg bókabúð fær eina milljón í styrk Ómþýtt... en oddhvasst Ný stikla úr Ódysseifskviðu frumsýnd „Við settum markið hátt og það tókst“ Kaldir á ísnum, sjóðheitir í klefanum Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kaldir á ísnum, sjóðheitir í klefanum Ný stikla úr Ódysseifskviðu frumsýnd Dómnefnd Feneyjatvíæringsins segir af sér Rocky Horror valin athyglisverðust Fyrrum söngvari Santana látinn Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Skýrar myndir sem nísta hjartað Eins konar æði gripið Íslendinga Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Danska konan skuldar laun Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu „Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér friðinn“ Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Áhugaverð viðtöl Menning Reynir að vera sem ósýnilegust Menning Málaði trjáboli með varalitum Menning Varð óvart að söngleik Menning „Ég gef engan afslátt“ Menning Ómögulegt að gera þetta svona sjaldan