- What: A hospital board member raises concerns about transparency in financial reporting
- Impact: Concerns about financial accountability within a healthcare organization
Innlent | mbl | 24.4.2026 | 22:00 Sakar formanninn um leyndarhyggju Magnús E. Smith, stjórnarmaður hjá framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélagsins. Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands segir leyndarhyggju ráða ríkjum hjá formanni félagsins hvað rekstur félagsins varðar. Hann hefur óskað eftir sundurliðuðum upplýsingum um launakostnað og önnur útgjöld félagsins en engin svör fengið. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hafnar því alfarið að eitthvað gruggugt sé í rekstri félagsins eða að leyndarhyggja ráði ríkjum. Hún segir að allir ársreikningar félagsins verði birtir opinberlega, eftir fulltrúarþing Sjúkraliðafélagsins á þriðjudag, og að allt sé uppi á borðum. Í samtali við mbl.is segir Magnús E. Smith stjórnarmaður að hann hafi ákveðið að fá óháða aðila til að fara yfir ársreikninga félagsins eftir að hafa fengið takmörkuð svör við fyrirspurn um þá og að hans sögn sérkennilegt viðmót þegar hann lagði fram breytingartillögu er lýtur að launagreiðslum fyrir stjórnarsetu á fundi stjórnar. Óskaði svara um ársreikning félagsins Magnús ákvað því að safna saman ársreikningum félagsins frá árinu 2019 til 2024 og bað óháða aðila að fara yfir þá. Þá kom í ljós að mikil launahækkun hafði orðið hjá skrifstofu félagsins þrátt fyrir að fjöldi starfsmanna á skrifstofu hefði breyst lítið. Frá árinu 2022 til 2024 jukust laun og launatengdgjöld félagsins um rúmar 49 milljónir króna. Sandra segir í samtali við mbl.is að þessi aukni kostnaður skýrist m.a. vegna breytinga sem voru gerðar árið 2022 þar sem greiðslur til stjórnarmanna hjá deildum félagsins fóru undir launakostnað til að auka gagnsæi. Hún segir að 65 einstaklingar falli þar undir. Magnús sendi Söndru fyrirspurn á mánudaginn síðastliðinn þar sem hann óskaði svara við ýmsum þáttum er lúta að ársreikningi félagsins. Fékk ekki svör Hann óskaði m.a. eftir sundurliðuðum kostnaði vegna launagreiðslna til svæðisdeilda félagsins, trúnaðarmanna, skrifstofu og upplýsingum um heildarlaun formanns, varaformanns og framkvæmdastjóra. Auk þess var óskað eftir upplýsingum um kostnað við gerð nýrrar heimasíðu fyrir félagið, lögfræðikostnaði, kostnað við endurskoðun og öðrum útgjaldaliðum. Magnús bendir á að kostnaðurliður við endurskoðun hjá Sjúkraliðafélaginu sé hærri en hjá stærstu verkalýðsfélögum landsins. Magnús gaf Söndru frest til dagsins í dag til að svara en engin svör hafa borist. Þess í stað fékk Magnús tölvupóst frá endurskoðendafyrirtækinu sem starfar fyrir Sjúkraliðafélagið þar sem honum er boðið að undirrita alla ársreikninga félagsins. Hann segir að þar hafi vantað blaðsíðu í ársreikninga þar sem sundurliðaður kostnaður fyrir skrifstofu félagsins kemur fram. Kostnaðurinn nemur rúmum hundrað milljónum króna. Formaðurinn segir allt uppi á borðum Magnús segist ekki með góðu móti geta undirritað ársreikninga þar sem hann viti ekki hvað hann sé að undirrita þar sem upplýsingar vanti. Ársreikningarnir verða bornir upp á fulltrúarþingi Sjúkraliðafélagsins til samþykktar á þriðjudag. „Ég ætla ekki að undirrita þetta fyrr en ég veit hverja einustu krónu sem er þarna á ferðinni og mér er ekki svarað,“ segir Magnús. Spurð út í þetta segir Sandra að allt sé uppi á borðum hvað ársreikninga félagsins varðar. Hún segir að upplýsingar um heildarlaun starfsmanna á skrifstofu félagsins hafi verið kynntar fyrir stjórnarmönnum. Magnús hefur setið í framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélagsins í tvö ár. Hann segir að á þeim tíma hafi hann komið að þremur fjárhagslegum ákvörðunum er varða félagið: gjöf í minningarsjóð, kostnaði vegna viðburða á verkalýðsdaginn og ákvörðun um styrk til góðgerðarstarfsemis. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Get ekki kvartað yfir þeim þjálfurum sem ég hef haft Ekki einu sinni kominn hálfleikur Sakar formanninn um leyndarhyggju Baltasar og Sunneva ástfangin í New York Hestasýning æskufólks endurvakin Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Milljónir munu missa vinnuna Óttast ekki hótun Bandaríkjanna Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Mest lesið Í gær Í vikunni Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Ekið á konu á gangi við Skógarveg Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Get ekki kvartað yfir þeim þjálfurum sem ég hef haft Ekki einu sinni kominn hálfleikur Sakar formanninn um leyndarhyggju Baltasar og Sunneva ástfangin í New York Hestasýning æskufólks endurvakin Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Óttast ekki hótun Bandaríkjanna Mest lesið Í gær Í vikunni Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Ekið á konu á gangi við Skógarveg Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar