Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Liverpool upp í fjórða

  • What: Liverpool wins against Crystal Palace in the Premier League
  • Impact: Sports fans are affected
Read Full Article →

Liverpool tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Heimamenn unnu 3-1 og eru því í fjórða sæti deildarinnar. Alexander Isak skoraði fyrsta mark Liverpool á 35. mínútu og Andy Robertson sá til þess að þeir rauðklæddu leiddu með tveimur í hálfleik þegar hann skoraði úr skyndisókn á 40. mínútu. Daniel Munoz svaraði fyrir gestina með marki á 71. mínútu. Það dugði hins vegar ekki til og Florian Wirtz innsiglaði sigur Liverpool með marki í uppbótartíma, lokatölur 3-1. Fyrr í dag lagði Fulham Aston Villa 1-0 og West Ham hafði betur gegn Liverpool 2-1. Tottenham vann svo sinn fyrsta sigur í deildinni síðan 28. desember. Liðið vann Úlfana 1-0 í dag. Manchester United, Liverpool og Aston Villa eru nú öll með 58 stig í 3.-5. sæti deildarinnar. United á þó leik til góða. Arsenal tekur svo á móti Newcastle klukkan 16:30.

Share this article