Samfylkingin undir forystu Kristrúnar Frostadóttur er sífellt að kokka upp plön til þess að leysa öll heimsins vandamál og minnir þannig um margt á Baldrek skósvein Edmunds Blackadder í hinni eftirminnilegu sjónvarpsþáttaröð – ávallt með plan á reiðum höndum en engar lausnir. Á dögunum kynnti Kristrún plan Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarmálum og vakti það athygli að kynningin fór fram á bílastæðinu við Smáratorg í Kópavogi. Hröfnunum sýnist Kristrún og flokksmenn Samfylkingarinnar hafa eitthvert blæti fyrir bílastæðum. Þannig kynntu Kristrún og hennar fólk „framkvæmdaplan í húsnæðis- og kjaramálum“ á bílastæðinu fyrir utan Bónus á Egilsstöðum fyrir síðustu Alþingiskosningar. Hrafnarnir heyra að Samfylkingarfólk horfi nú hýru auga til bílastæðisins þar sem sérvörudeild Hagkaupa, Bónus og Ríkið eru á Selfossi í þessum efnum. Hrafnarnir hafa fullan skilning á bílastæðablæti Samfylkingarfólks og segir það meira en mörg orð að það þurfi að halda sig sem lengst frá Reykjavík til þess að fá útrás fyrir þörfinni að standa við auð bílastæði. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 21. apríl 2026.