Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Arkitekt Samfylkingarinnar og ein spæling

Read Full Article →

Viðskiptablaðið kom út í morgun. Það er svo sem ekki stór frétt því blaðið hefur komið út vikulega í 1.662 vikur. Óðinn fjallaði í blaðinu um fasteignamarkaðinn, sem er botnfrosinn, reglur seðlabankans sem voru settar til að temja fasteignaverðshækkanir vegna lóðaskorts í Reykjavík og óskiljanleg ummæli Kristrúnar Frostadóttur í hlaðvarpi á dögunum. Að endingu rifjar Óðinn um alveg hreint afbragðsgrein sem birtist í Alþýðublaðinu árið 1997. Hún fjallar um manninn sem bjó til Tony Blair sem stjórnmálamann og hinn nýja Verkamannaflokk í Bretlandi. Áskrifendur geta lesið pistilinn hér . Greinin er augljóslega skrifuð af Össuri Skarphéðinssyni, þá ritstjóra Alþýðublaðsins. Stíllinn, tungutakið og ekki síst skýr framsetning eru einkenni Össurar. En það er annað sem er miklu áhugaverðara. Uppskrift Peter Mandelson að nýja Verkamannaflokknum í Bretlandi er nákvæmlega sú sama og af Samfylkingu Össurar. Það sem enn merkilegra er, að nákvæmlega sama uppskriftin var notuð til að endurskapa Samfylkinguna undir stjórn Kristrúnar Frostadóttur. Til dæmis með því að slátra gamaldags vinstrimönnum, líkt og Helgu Völu Helgadóttur og borgarstjóranum Heiðu Björgu Hilmisdóttur. Mandelson fékk viðurnefnið „snillingurinn slæmi.“ Ætli einhver sé í því hlutverki hjá Samfylkingunni í dag? Ein spæling Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mætti í Eina pælingu á dögunum. Óðinn hélt að pirringur forsætisráðherrans gæti ekki aukist eftir Silfrið fyrr í mánuðinum, en þessi þáttur var hrein hörmung fyrir ráðherrann. Í þættinum sagði Kristrún þetta: „Við erum fyrst og fremst að reyna að skapa aðstæður til að ríkisfjármálin séu ekki þensluhvetjandi, eru sjálfbær, og svo sé að minnsta kosti af okkar hálfu hægt að draga úr þenslu yfir lengri að til lengri tíma, lækka vexti. Raunverð húsnæðis er að fara í rétta átt sko. Rétta átt. “ Húsnæðisverð er að lækka. Það mun bæði lækka að nafnverði og raunverði. Er forsætisráðherrann á Íslandi raunverulega að segja að það sé jákvætt? Það er svo annað mál að lækkunin er óumflýjanleg. Og lækkunin er bein afleiðing af ákvörðunum ríkisstjórnar Kristrúnar, sem hefur bara ekki reynt neitt til að „skapa aðstæður til að ríkisfjármálin séu ekki þensluhvetjandi. “ Bara ekki neitt. Seðlabankinn segir að halli síðasta árs verði meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir og eins hallinn í ár. Reyndar munu 40 milljarða gjöf frá danska ríkinu í gegnum Kerecis jafna hallann. Óðinn er ekki vongóður og ekki kæmi mér á óvart að útgjaldaríkisstjórn Kristrúnar sé þegar búin að eyða lunganum af þeim dönsku krónum. Samfylkingunni segist vera sérstaklega umhugað um ungt og fátækt fólk. Meðal þeirra sem hafa keypt íbúðir undanfarin misseri er einmitt þetta fólk. Núna horfist það í augu við lækkanir á eignum sínum. En þau geta huggað sig við það að Kristrún Frostadóttir segir að þetta sé gott. Reyndar ekki fyrir kaupendurna, en fyrir ríkisstjórnina sem með útgjöldum sínum stöðvaði vaxtalækkanir Seðlabankans. *** Arkitekt Samfylkingarinnar Peter Mandelson fyrrum ráðherra Verkamannaflokksins og hugmyndasmiður hans var handtekinn á mánudag fyrir að selja barnaníðingnum Jeffrey Epstein aðgang að breska stjórnkerfinu. Mandelson hefur þurft að segja af sér ráðherraembætti tvisvar vegna spillingarmála. Peter Mandelson var ekki bara arkitekt Verkmannaflokks Blair heldur líka Samfylkingar Össurar. Árið 1997 skrifaði Össur Skarphéðinsson grein í Alþýðublaðið sáluga. Við lestur greinarinnar hljóta menn að velta fyrir sér hvað fékk Murdoch í staðinn fyrir stuðninginn árið 1997. Það er fleira eftirtektarvert. Mandelson ýtti þeim sem voru mest til vinstri, og þeim sem voru fyrir, út. Þetta er nákvæmlega sama uppskriftin og Samfylkingu Kristrúnar Frostadóttur. Ætli greinarhöfundurinn hafi ekki kennt Kristrúnu þetta. Jafnvel aðstoðað hann við verkið. Hér á eftir er hin ágæta grein Össurar úr Alþýðblaðinu 15. maí 1997: Arkitekt sigursins Peter Mandelson, fyrrum framleiðandi sjónvarpsþátta, breytti ímynd og inntaki Verkamannaflokksins. Hann gerði Blair að formanni, en er umdeildur vegna aðferða sinna. Honum er samt spáð miklum frama þegar öldur kringum hann lægja. Blair getur ekki án hans verið. Gordon Brown, fjármálaráðherra ríkisstjórnar Verkamannaflokksins, deildi skrifstofu með Tony Blair, og var af flestum álitinn næsti formaður Verkamannaflokksins. En Mandelson taldi hann á að fara ekki fram gegn Tony Blair. Peter Mandelson er hógvær maður og gaf út ævisögu sína árið 2010 sem nefndist Þriðji maðurinn (á eftir Blair og Brown). Samkvæmt tölvupóstum gaf Jeffrey Epstein Mandelson ráð vegna útgáfu bókarinnar. © epa (epa) Innan Verkamannaflokksins er Peter Mandelson afar umdeildur, þó enginn efist lengur um snilld hans sem áróðursmanns. Það var hann sem „fann“ Tony Blair löngu áður en hann varð formaður flokksins, og byrjaði að koma á framfæri við fjölmiðla sem framtíðarmanni flokksins. Hann skipulagði og leiddi baráttu Blairs fyrir formannsembættinu, þegar John Smith dó. Hin sigursæla kosningabarátta Verkamannaflokksins á þessu vori var steypt í smiðju hans, og meðan á henni stóð hófst sérhver morgunn Tony Blairs með símtali við Peter Mandelson. Mikilvægi hans fyrir forsætisráðherrann og beinn aðgangur að valdamesta manni Bretlandseyja hefur skapað öfund innan flokksins. Í dag er Peter Mandelson orðinn þingmaður, hann er jafnframt ráðherra án ráðuneytis sem er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að búa til nýjar hugmyndir og vera slökkvilið þegar skyndileg vandamál skapast vegna ófyrirséðra atvika. Það er til marks um stöðu hans, að enginn annar ráðherra eða ráðgjafi Blairs hefur skrifstofu jafn nálægt forsætisráðherranum og hann. Hann er hins vegar umdeildur ennþá innan Verkamannaflokksins vegna breytinganna sem hann stóð fyrir á flokknum, en flestum þykir líklegt að þegar mestu stormana kringum hann hefur lægt ætli Tony Blair honum mikið hlutverk í framtíðinni. Áskrifendur geta lesið Viðskiptablaðið og pistil Óðins hér.

Share this article