Innlent | mbl | 27.4.2026 | 10:15 Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Meyvant Þórólfsson segir að Inga Sæland hafi bent á það sem skólakerfið þorir ekki að tala um. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Kennarar æfir út í Ingu Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp » Fleiri tengdar fréttir Meyvant Þórólfsson, prófessor emeritus og sérfræðingur í mats- og námskrárfræðum, gagnrýnir viðbrögð þingfulltrúa á fulltrúaþingi Kennarasambands Íslands við ræðu Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og segir þau hafa borið merki um virðingarleysi. Í grein í Morgunblaðinu í dag fjallar Meyvant um ræðu ráðherra við setningu fulltrúaþings KÍ 15. apríl, þar sem hún ræddi meðal annars námsmat, skóla án aðgreiningar og stöðu skólakerfisins. Hann segir að undrunarsvipir, hlátur, höfuðhristingar og brottganga þingfulltrúa hafi vakið athygli og að kjánahrollur hafi líklega farið um marga við að sjá viðbrögðin. Meyvant segir að formaður KÍ hafi réttilega kallað eftir því að orðræða um skólakerfið byggðist á virðingu. Hann telur þó að þau orð hefðu einnig átt að beinast að félagsmönnum sambandsins sjálfs. Frétt af mbl.is Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Frá Kennaraþingi 15. apríl. mbl.is/Árni Sæberg Hræðileg, handónýt og ömurleg Hann tekur undir gagnrýni Björns Bjarnasonar, fyrrverandi menntamálaráðherra, sem spurði í bloggfærslu hvar ráðherra ætti frekar að lýsa skoðunum sínum en fyrir framan forystumenn kennara. Meyvant segir umræðuna vissulega þurfa að byggjast á virðingu, en á báða bóga. Gagnrýnir hann einnig þróun námskrár og námsmats á undanförnum árum. „Að mati undirritaðs var skólakerfið á góðum stað um aldamótin síðustu. Inntaksmiðaðar námskrár tóku gildi árið 1999 með skýrum markmiðum og hæfniviðmiðum og samsvörun var tryggð milli alhliða þroska nemenda, hagnýtra námssviða og fræðigreina. Tekin voru upp samræmd lokapróf í kjarnagreinum, sem höfðu jafnt leiðsagnargildi og forspárgildi. Að baki þessu kerfi lá vönduð og fagleg vinna margra sérfræðinga,“ skrifar Meyvant. „En skólinn er ekki eyland, því síður menntakerfið í heild. Með hruni efnahagskerfisins sogaðist allur afrakstur þessarar vönduðu vinnu í brimrótið og hvarf. Við tók vinstri-græn hugmyndafræði mauraþúfunnar, hönnuð á svonefndum þjóðfundum árið 2009. Síðan höfum við búið við gagnslitlar aðalnámskrár með loðin og ómælanleg hæfniviðmið, „hræðileg“, „handónýt“ og „ömurleg“, svo vitnað sé í orð skólastjórnenda í skýrslu frá 2020, Mat á innleiðingu aðalnámskrár grunnskóla.“ Frétt af mbl.is Óljóst og óáreiðanlegt: „Alveg á floti“ Vogaði sér að segja sannleikann Loks segir hann: „Inga Sæland virkaði eins og barnið, sem vogaði sér að segja það sem öllum mátti ljóst vera: „Keisarinn var ekki í neinum fötum.“ Skólasamfélagið þagði hins vegar eins og það væri haldið eins konar stokkhólmsheilkenni. Í stað þess að andmæla vitleysunni virðist það hafa lagað sig að hinni ónýtu aðalnámskrá sem hefur verið í gildi undanfarin ár illu heilli. Viðtöl við kennara undanfarið bera þess merki að í skólum hafi þróast og innmúrast ósamræmdur óskapnaður hæfni- og matsviðmiða, sem fólki utan veggja skólans hefur reynst fyrirmunað að skilja.“ Frétt af mbl.is Saga misheppnaðra skólaumbóta Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Kennarar æfir út í Ingu Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hart barist um leikmann Liverpool Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Instagram: Fengu næturpössun og máluðu bæinn rauðan Íbúafundur í kvöld vegna kaffistofu Samhjálpar Ferguson hringdi í eiginkonu Solskjærs Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Leiðtogar heimsins „í áfalli“ Vindhviður yfir 30 metrar á sekúndu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hvassviðri eða stormur í kvöld Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Maðurinn fannst látinn við Háafoss Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Hart barist um leikmann Liverpool Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Instagram: Fengu næturpössun og máluðu bæinn rauðan Íbúafundur í kvöld vegna kaffistofu Samhjálpar Ferguson hringdi í eiginkonu Solskjærs Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Skotárás á hátíðarkvöldverði: Það sem er vitað Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hvassviðri eða stormur í kvöld Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Maðurinn fannst látinn við Háafoss Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði