Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meðal fimm þjóða í mælingum á norsk-íslenskri síld

Read Full Article →

Dagana 27. apríl til 15. maí er rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir við stofnmælingar á norsk-íslenska síldarstofninum og að kanna ástand vistkerfi sjávar austur og norðaustur af landinu. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar þar sem segir að um sé að ræða árlegan alþjóðleganleiðangur sem farinn hafi verið allt frá árinu 1996. Niðurstöður í lok sumars „Til viðbótar við Þórunni taka skip þátt í leiðangrinum frá Bretlandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi. Niðurstöður leiðangursins verða kynntar í sameiginlegri leiðangursskýrslu til Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) undir lok sumars,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Leiðangurslínur skipanna fimm Myndin hér að neðan sýnir leiðangurslínur skipanna fimm þar sem línur Þórunnar eru auðkenndar með grænum lit, ásamt staðsetningu sjó- og áturannsókna (auðkenndar með bláum tíglum innan hringja).

Share this article