Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 5:58 Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Bæði körlum og konum sem þiggja örörkubætur hefur fjölgað mikip á tímabilinu 2020-2025. mbl.is/Ómar Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Alls voru greiddir tæpir 78 milljarðar króna í örorkubætur í fyrra og hafa greiðslurnar farið vaxandi ár frá ári. Á tímabilinu 2020-2025 voru alls greiddir um 386,5 milljarðar í örorkubætur. Þetta kemur fram í svari Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur alþingismanns Sjálfstæðisflokksins. Bæði konum og körlum sem þiggja örorkubætur hefur fjölgað mjög á fyrrgreindu árabili, en árið 2020 voru karlar í þessum hópi 20.473 en árið 2025 voru þeir orðnir 30.280 talsins. Konur í hópi bótaþega voru 32.616 árið 2020 en 47.570 árið 2025. Alls nutu 77.854 einstaklingar örorkubóta í fyrra samanborið við 53.089 árið 2020. Flestir karlanna sem örorkubóta njóta eru á aldrinum 60-67 ára, en þeir voru 7.700 talsins í fyrra samanborið við 5.146 árið 2020. Fer körlum í þessum hópi fjölgandi með hækkandi aldri ef frá er talinn yngsti hópurinn. Sömu sögu er að segja af konum, en 14.057 konur á aldrinum 60-67 ára fengu bætur í fyrra. Þær voru 9.061 árið 2020. Athygli vekur að í yngsta aldurshópnum, þ.e. 18-29 ára, eru karlar mun fleiri en konur. Þeir voru í fyrra 3.763 en konur á þessu aldursbili voru 2.772 talsins. Einnig var spurt um hversu há fjárhæð hefði runnið til erlendra ríkisborgara á fyrrgreindu árabili og var því svarað til að í fyrra voru útlendingum greiddar 3.610 milljónir í bætur. Það er meira en tvöfalt hærri fjárhæð en árið 2020 þegar 1.648 milljónir voru greiddar erlendum öryrkjum. Mikil aukning á einu ári Sama er upp á teningnum þegar kemur að örorkubótagreiðslum til hælisleitenda sem fengið hafa vernd hér á landi. Í fyrra námu greiðslur til þessa hóps 720 milljónum, en árið 2020 voru þær 233,8 milljónir. Fram kemur í svarinu að umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylli ekki skilyrði fyrir greiðslum vegna örorku, skv. lögum um almannatryggingar. Í svari við spurningu um ríkisfang hinna erlendu bótaþega kemur fram að hæstu greiðslurnar í fyrra runnu til sýrlenskra öryrkja, en þeim hlotnuðust 111,3 milljónir það ár. Næsthæsta upphæðin féll öryrkjum frá Venesúela í skaut, 83,2 milljónir, en í þriðja sæti eru íraskir öryrkjar sem fengu 62,8 milljónir í sinn hlut 2025. Fjórðu í röðinni eru Afganar með 48,3 milljónir og fimmta sætið verma Palestínumenn með 41,9 milljónir. Rétt er að halda því til haga að útlendingar sem áður voru með alþjóðlega vernd, en hafa nú fengið íslenskan ríkisborgararétt, fengu greiddar 312,3 milljónir í bætur í fyrra. Þeir bótaflokkar sem undir örorkugreiðslur falla eru að því er fram kemur í svarinu; örorku- og hlutaörorkulífeyrir, aldurstengd örorkuuppbót, aldursviðbót örorku- og hlutaörorkulífeyris, tekjutrygging örorkulífeyrisþega, heimilisuppbót, orlofs- og desemberuppbót á tekjutryggingu örorkulífeyris, orlofs- og desemberuppbót á heimilisuppbót örorkulífeyris, sérstök uppbót til framfærslu örorkulífeyrisþega og uppbót vegna breytts örorkukerfis 2025. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Ennþá saklaus og ennþá óhræddur við ákærurnar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Hvatti Bandaríkin til að standa með bandamönnum Ég fór bara að grenja síðustu mínútuna Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Mesta magn í sögunni Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Ennþá saklaus og ennþá óhræddur við ákærurnar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Hvatti Bandaríkin til að standa með bandamönnum Ég fór bara að grenja síðustu mínútuna Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Grunar að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var Mesta magn í sögunni Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“

Share this article