Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 10:00 Segir örorkubætur á sjálfstýringu Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum » Fleiri tengdar fréttir Greiðslur til bótaþega örorkubóta hafa farið stigvaxandi ár frá ári og nemur aukningin tæplega 25 milljörðum á árabilinu 2020-2025 sem jafngildir um 47% hækkun yfir umrætt 6 ára tímabil. Greiðslurnar hafa vaxið um á bilinu 5,5%-10,5% á milli ára. Mest varð aukningin á milli áranna 2022 og 2023, en á milli áranna 2020 og 2025 var hún tæp 10%. Í fyrra fengu konur í hópi örorkubótaþega alls 47,5 milljarða greidda, en karlar tæpa 30,3 milljarða. Árið 2020 var þessi upphæð umtalsvert lægri, karlar fengu 20,5 milljarða en konur 32,6 milljarða. Frétt af mbl.is Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Fjárhæð en ekki fjöldi Þess misskilnings gætti í frétt blaðsins í gær að um væri að ræða fjölda einstaklinga á tilteknum aldursbilum sem greiðslurnar hefðu þegið, þegar hið rétta er að þar var um að ræða þær fjárhæðir sem einstaklingar á hinum tilteknu aldursbilum fengu greiddar. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun var fjöldi örorkulífeyrisþega árið 2024 tæplega 21.000 sem jafngildir um 8% landsmanna á aldrinum 18-66 ára og voru flestir þeirra á aldursbilinu 60-66 ára. Kynjahlutfall það ár var með þeim hætti að 10% kvenna hér á landi þáðu örorkubætur en 6% karla. Ef miðað er við landsmenn alla sem búsettir eru hér á landi segir Tryggingastofnun að rúmlega 5% þeirra fái greiddar örorkubætur. Hlutfallið hafi verið nokkuð stöðugt undanfarin ár, en fari þó heldur hækkandi. „Greiðslurnar eru vaxandi og þróunin verulegt áhyggjuefni,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið, þegar leitað var viðbragða hennar við stigvaxandi hækkun örorkubóta. Hún segir að sérstakt áhyggjuefni sé sú háa fjárhæð sem ungir karlmenn fái í bætur og skoða verði sérstaklega þá þróun sem býr þar að baki. Há fjárhæð til hælisleitenda „Ég nefni líka þá háu fjárhæð og vaxandi sem greidd hefur verið hælisleitendum sem hingað koma og fá vernd,“ segir Diljá Mist, en í fyrra fengu þessir aðilar greiddar 720 milljónir vegna örorku, sem er nær 100 milljónum hærri fjárhæð en 2024. Greiðslur til þessa hóps námu 233,8 milljónum árið 2020 en voru 720 milljónir í fyrra og er munurinn rúmar 486 milljónir. Diljá bendir á að síðasta liðnum í fyrirspurn hennar hafi ekki verið svarað, en þar spurði hún um hversu háar fjárhæðir hefðu runnið annars vegar til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd hins vegar. Ekki var svarað spurningunni um greiðslur til umsækjenda um alþjóðlega vernd og er sú skýring gefin að hvorki ráðuneytið né Tryggingastofnun hafi upplýsingar um heildarfjölda þeirra einstaklinga sem dvelja hér á landi hverju sinni með dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar. Því liggi ekki fyrir upplýsingar um hversu hátt hlutfall hópsins fékk örorkubætur árin 2020-2025. Segir í svarinu að umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylli ekki skilyrði fyrir greiðslum vegna örorku samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þörf á mælaborði Diljá segist hafa barist fyrir því árum saman að komið verði upp sérstöku mælaborði um innflytjendur á Íslandi þar sem birtar yrðu upplýsingar um hverskyns félagslegar aðstæður sem þessir aðilar njóta. Nauðsynlegt sé að fylgjast með þróun mála. „Við viljum gera vel við okkar minnstu bræður og við vitum að einhver hluti samfélagsins tilheyrir þeim hópi sem fær greiddar bætur,“ segir hún en nefnir jafnframt að hin mikla hækkun greiðslna hljóti að vera athugunarefni hjá stjórnvöldum. „Útgjöldin í þennan málaflokk eru á sjálfstýringu upp á við og það er áhyggjuefni. Við hljótum að leita skýringa,“ segir Diljá. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir örorkubætur á sjálfstýringu Klám er undirstöðuvandamálið „Hvað er í gangi? Hversu mikið meira þolum við?“ Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Danska konan skuldar laun Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“