Innlent | Morgunblaðið | 5.5.2026 | 10:18 Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Útlenskum örorkubótaþegum hefur fjölgað ár frá ári. mbl.is/Arnþór Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Alls fengu 1.078 erlendir ríkisborgarar greiddar örorkubætur hér á landi í fyrra og nam heildarfjárhæðin sem þeir þáðu um 3.610 milljónum króna. Lætur nærri að hver og einn útlendingur hafi fengið greiddar ríflega 3,3 milljónir að jafnaði árið 2025. Útlenskum örorkubótaþegum hefur fjölgað ár frá ári, en skv. svari Tryggingastofnunar við fyrirspurn Morgunblaðsins voru þeir 781 talsins árið 2020, 847 árið 2021, 956 árið 2022, 1.038 árið 2023 og 1.067 árið 2024. Örorkubæturnar sem þeir þiggja vaxa einnig jafnt og þétt. Námu greiðslurnar 1.648 milljónum árið 2020, 1.877 milljónum árið 2021, 2.326 milljónum árið 2022, 2.839 milljónum árið 2023 og 3.232 milljónum árið 2024. Heildarfjárhæð greiddra örorkubóta til útlendinga á sex ára tímabili, þ.e. frá 2020 til 2025, nemur rúmlega 15,5 milljörðum króna. Morgunblaðið spurðist einnig fyrir um greiðslur örorkubóta til erlendra ríkisborgara sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi. Í svari Tryggingastofnunar kemur fram að árið 2020 hafi 41 hælisleitandi þegið tæpar 114,2 milljónir, árið 2021 fengu 49 hælisleitendur ríflega 137,5 milljónir. Árið 2022 hækkaði fjárhæðin verulega, en það ár voru 228 milljónir rúmar greiddar 70 hælisleitendum í örorkubætur. Árið 2023 nam þessi fjárhæð 301,6 milljónum en bótaþegarnir voru 85. Árið 2024 voru bótaþegar 96 að tölu og fengu greiddar 380 milljónir rúmar í örorkubætur. Hæst var fjárhæðin svo í fyrra, en þá fengu 94 hælisleitendur greiddar 407,7 milljónir í örorkubætur. Alls nemur fjárhæðin yfir framangreint sex ára tímabil 1.570 milljónum króna. Morgunblaðið spurðist einnig fyrir um fjölda þeirra hælisleitenda sem síðan hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt og hversu háar örorkubætur þeir hafa þegið. Fram kemur í svari Tryggingastofnunar að þeir sem þannig háttar til um hafi verið 45 talsins árið 2020 og fengu það ár greiddar tæpar 120 milljónir í bætur. Árið 2021 voru þeir 51 og fengu tæpar 148 milljónir. Árið 2022 fengu 54 slíkir aðilar greiddar 165,5 milljónir, árið 2023 voru þeir orðnir 63 og fengu 224,4 milljónir. Árið 2024 voru þeir örorkubótaþegar sem svona háttar til um orðnir 64 og örorkubæturnar 248 milljónir tæpar. Í fyrra var svo fjöldinn orðinn 76 og milljónirnar 312,2 alls. Samtals fengu því hælisleitendur sem hingað leituðu og orðnir eru íslenskir ríkisborgarar greiddar rúmar 1.211 milljónir í örorkubætur á árabilinu 2020 til 2025. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spánn tekur við skipinu með hanta-veirunni Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Tekur á sig launalækkun til að yfirgefa Liverpool Myndskeið: Stórt vafaatriði í lokin í Kaplakrika Aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir X26 – Oddvitar í Mosó mætast Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Hafna fyrirspurn og gestakomum Horfa ekki til sólmyrkva í kjaraviðræðum Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Spánn tekur við skipinu með hanta-veirunni Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Tekur á sig launalækkun til að yfirgefa Liverpool Myndskeið: Stórt vafaatriði í lokin í Kaplakrika Aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spánn tekur við skipinu með hanta-veirunni X26 – Oddvitar í Mosó mætast Munu leggja til að orðalaginu verði breytt Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Hafna fyrirspurn og gestakomum Horfa ekki til sólmyrkva í kjaraviðræðum Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“