Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meintir risaafslættir á heitu vatni

Read Full Article →

Innlent | Kosningar | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 6:00 Meintir risaafslættir á heitu vatni GPG er mikilvægt fyrirtæki í Norðurþingi og hefur verið lengi. mbl.is/Kristófer Liljar Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Ágreiningur hefur risið innan stjórnar Orkuveitu Húsavíkur vegna kjara sem tvö fyrirtæki hið minnsta hafa notið á heitu vatni í yfir áratug hjá orkufyrirtækinu. Kemur málið upp í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi þar sem sex listar bjóða fram. Fyrirtækin sem um ræðir eru annars vegar N-lax á Laxamýri, sem stundað hefur fiskeldi á svæðinu og var stofnað árið 2009, og hins vegar GPG Seafood, sem er mikilvægur atvinnurekandi jafnt á Húsavík og á Raufarhöfn. Hafa fulltrúar minnihlutans í sveitarstjórn Norðurþings haldið því fram að N-lax njóti nú um stundir allt að 94% afsláttar á heitu vatni miðað við gjaldskrár fyrirtækisins og að afsláttur GPG sé um 70%. Morgunblaðið hafði samband við Sigurgeir Höskuldsson, stjórnarformann Orkuveitu Húsavíkur, en hann hefur setið í stjórn hennar allan þann tíma sem samningarnir við fyrirtækin hafa verið í gildi. „Það er ekki rétt að fyrirtækin njóti eiginlegs afsláttar. Í samningnum sem gerður var við N-lax var kveðið á um hlutdeild Orkuveitunnar í söluandvirði þeirra afurða sem fyrirtækið framleiðir. Sú starfsemi hefur öll dregist mjög saman og er mun takmarkaðri en var á sínum tíma þegar samningurinn var gerður,“ útskýrir hann. Stórnotendaafsláttur ei meir Í tilviki GPG naut fyrirtækið stórnotendaafsláttar samkvæmt þágildandi verðskrá að sögn Sigurgeirs. Hún hafi verið afnumin fyrir u.þ.b. ári. „Þá þarf að skoða þessi kjör út frá tæknilegum forsendum og á hvaða tíma efnt var til viðskipta við þessi fyrirtæki. Þannig var það t.d. í tilviki N-lax að um endalögn var að ræða og það var mikilvægt að halda uppi hitanum á lögninni ofar í kerfinu. Ef þessi samningur hefði ekki orðið að veruleika hefði þetta vatn einfaldlega runnið ónýtt til sjávar,“ útskýrir hann. Segir Sigurgeir að umræðan um þessa samninga hafi komið upp innan stjórnar Orkuveitunnar og að í kjölfarið hafi verið ákveðið að endurskoða þá. Sú vinna standi nú yfir. Í samtali við oddvitaframbjóðendur í sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi, sem Morgunblaðið efndi til á Húsavík í gær, sagði Aldey Unnar Traustadóttir, oddviti V-lista velferðar, að erfitt hefði verið að afla upplýsinga um samningana við fyrirtækin sem um ræðir. Í réttum farvegi Fulltrúar flokkanna sem mynda meirihluta í bæjarfélaginu, Helena Eydís Ingólfsdóttir frá Sjálfstæðisflokki og Eysteinn Heiðar Kristjánsson, segja málið hins vegar í réttum farvegi og að þar til bærir aðilar innan Orkuveitunnar hafi það með höndum að skýra stöðuna betur. Orkuveita Húsavíkur hefur verið burðarás í samfélaginu á svæðinu í áratugi og reynst mikill fjárhagslegur bakhjarl sveitarfélagsins. Þannig má t.d. sjá að fyrir nýliðið rekstrarár greiddi fyrirtækið eiganda sínum 70 milljónir króna í arð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Víða skúrir eða slydduél Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Dagur Sigurðsson í nýtt starf? Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta magn í sögunni Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Grunar að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Víða skúrir eða slydduél Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Dagur Sigurðsson í nýtt starf? Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Friðarviðræður í járnum um sinn Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Grunar að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“

Share this article