Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Var enginn óknyttastrákur en lá á að komast út í lífið

Read Full Article →

Fréttamanninum Hauki Holm hefur brugðið fyrir á sjónvarpsskjám landsmanna um áratugaskeið og hann hefur yfir 40 ára reynslu af blaðamennsku. Hann hefur nú látið af störfum, nýorðinn sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast á fréttastofu RÚV. Haukur var gestur Guðrúnar Gunnarsdóttur og Gunnars Hanssonar í Mannlega þættinum á Rás 1. „Þó að ég sé hættur að vinna hér þá kem ég kannski til með að skrifa eitthvað sem lausamaður,“ segir hann. Hefði ekki getað hugsað sér að hætta á öðrum nótum Honum þykir mjög skrítið að vera hættur eftir langan feril. „Mér finnst enn þá svolítið eins og ég sé í vaktafríi en ég er smám saman að fóta mig í nýjum veruleika. Það er rosalega góð tilfinning, þetta er frelsi.“ Hann líti á sig sem kóngsins lausamann, hann sé engum háður og hafi það fínt. Hann vann síðustu vaktina sína þann 26. mars, daginn sem hann varð sjötugur. Hann átti þá síðustu frétt sjónvarpsfréttatímans um kvöldið og var í beinni útsendingu frá afmælistónleikum Kristjáns Kristjánssonar, eða KK, sem átti líka sjötugsafmæli þann dag. „Við erum gamlir bekkjarbræður svo þetta var svolítið móment. Ég hafði mætt alveg sex um morguninn, það var óveður og ég var með fyrstu frétt kvöldsins og svo þessa sem var síðust. Þetta með KK kom bara upp síðdegis, hvort það væri sniðugt að ég endaði þarna í beinni með honum.“ „Þá vissi fréttastofan svo sem ekkert um þessi tengsl okkar, að við værum afmælisbræður og bekkjarbræður. Mér fannst þetta ofsalega skemmtilegt móment og ég hefði ekki getað hugsað mér að hætta á öðrum nótum en þessum,“ segir Haukur sem flutti svo hjartnæma kveðju í lokin. Haukur Holm fyrrverandi fréttamaður segist hafa verið dálítið villtur en þó alltaf góður strákur. Hann hafði rómantískar hugmyndir um að verða skáld en sá fyrir sér að erfitt yrði að lifa á þeim skrifum og fór í blaðamennsku sem hann sinnti í 40 ár. Jákvætt hugarfar og hláturmildi haldi honum ungum Það kemur mörgum á óvart að Haukur skuli vera orðinn sjötugur en hann segist halda sér unglegum með því að vera jákvæður, hlæja mikið og líta á glasið sem hálffullt. „Ég held að sú hugsun haldi manni dálítið vel.“ „Og vinna með fólki sem er yngra en maður sjálfur, þá er maður í yngri fasa. Hvað útlit varðar þá veit ég ekki. Ég held ég hafi það kannski frá móður minni, hún leit alltaf út fyrir að vera 20 árum yngri en hún var.“ Móðir hans hafi orðið 102 ára og litið út fyrir að vera áttræð, eins varð amma hans 101 árs. „Ég veit ekki hvort ég er með þennan samning við almættið því pabbi dó þegar hann var rúmlega fimmtugur, þannig ég veit ekki hvorn miðann ég dró.“ Syngur aldrei þannig að aðrir heyri Haukur Holm er mikill tónlistaráhugamaður og þrír synir hans eru tónlistarmenn; elsti sonurinn Georg er bassaleikari í Sigur Rós en Kjartan og Starri eru báðir tónskáld. „Þetta er allt frá mér,“ segir Haukur og hlær. Hann segist þó ekki vera mikill tónlistarsnillingur sjálfur en er í hljómsveit þar sem hann leikur á gítar. „Við erum nokkrir miðaldra karlar sem hittumst einu sinni í viku yfir veturinn og spilum.“ Hann syngur aldrei opinberlega þó hann hafi unun af því að syngja. Það er vegna þess að sem drengur í Miðbæjarskólanum þótti honum mjög gaman í söngtímum og söng af öllum lífs og sálarkröftum þar til kennarinn stöðvaði kórinn og sagði eitthvað ekki hljóma rétt. Þá bað hún Hauk að hætta að syngja en hin börnin að halda áfram og þá hljómaði allt rétt. „Þetta var högg, mikið högg.“ „Ég fattaði það ekki þá, ég var auðvitað spældur en þetta hefur haft þær afleiðingar að ég syng aldrei þannig að aðrir heyri.“ Vinnufélagar hans af fréttastofunni gáfu honum í afmælisgjöf tvo söngtíma hjá Bergþóri Pálssyni sem Haukur ætlar að þiggja. „Því mig langar að geta að minnsta kosti sungið bakraddir, aðeins látið í mér heyra. Svo ég vitni bara í Sigur Rós: Því inni í mér syngur vitleysingur.“ Hafði rómantískar hugmyndir um að verða skáld Haukur segist alltaf hafa haft áhuga á fréttum. Hann hafi verið orðinn læs fjögurra ára og las þá blöðin og fylgdist vel með fréttum. „Ég var með rómantískar hugmyndir um að verða skáld en var nógu raunsær til að vita að það væri nú ekki öruggt lifibrauð og ekki víst einu sinni að ég gæti orðið skáld.“ Þá hugsaði hann með sér hvað hann gæti gert til að geta lifað á skrifum og datt þá blaðamennska í hug. Einnig sé hann mjög forvitinn um umhverfi sitt og fólk. „Mér finnst mér ekkert vera óviðkomandi. Ég vil yfirleitt vita aðeins meira.“ Var enginn óknyttastrákur en dálítið villtur Hann hafi hætt námi strax í menntaskóla. „Ég átti mjög auðvelt með nám. Í grunnskóla þurfti ég ekki að hafa neitt fyrir því, það bara kom. Svo allt í einu þegar maður kemur í menntaskóla þá þarf maður að kunna vinnubrögðin og ég hreinlega kunni þau ekki.“ Faðir hans lést þegar hann var 11 ára og þá var móðir hans ein með hann eftir það. „Þó að ég hafi verið góður strákur, held ég að mér sé óhætt að segja, þá var ég samt dálítið villtur og það var útþrá í mér.“ „Mér lá svolítið á að komast út í lífið,“ segir hann. „Ég hafði eiginlega ekki aga eða þolinmæði til að vera í skóla og ég held að ég hafi verið of mikið til að mamma hefði getað haft stjórn á mér. Þó að ég ítreki það að ég hafi verið enginn óknyttastrákur, heldur bara góður strákur. Mér fannst bara gaman að vera á fullri ferð.“ Viðtal við Leonard Cohen þeytti ferlinum áfram Hann hafi unnið við hin ýmsu störf, meðal annars í nokkur ár á Kleppi sem hann segir hafa verið mikinn og góðan skóla. Hann hafi skrifað fyrir hina ýmsu miðla af og til bæði um tónlist og lífið almennt. „Svo má kannski segja að fyrsta stóra verkið hafi verið 1985, þá fer ég til Rotterdam og tek viðtal við Leonard Cohen fyrir Moggann,“ segir Haukur en hann er mikill aðdáandi kanadíska tónlistarmannsins. Hann hafi verið látinn bíða en fékk svo loks að hitta átrúnaðargoðið sem reyndist hinn fullkomni gestgjafi, bauð honum upp á hvítvín og ræddi við hann hálftíma fyrir tónleika án þess að flýta sér nokkuð. Það viðtal hafi landað honum starfi á Alþýðublaðinu þar sem hann var í tæp tvö ár áður en hann fór yfir á Bylgjuna sem sameinaðist síðan Stöð 2. „Hjá því fyrirtæki var ég í 21 ár.“ „Það var rosalega gaman. Þá var maður yngri og ungur meira að segja. Fyrirtækið var ungt og það var þessi byrjendabragur og frumherjastemning.“ Honum þykir miður að sjá hvernig sú fréttastofa er orðin í dag. „Það er búið að skera svo mikið niður á henni. Mér liggur við að segja að það sé eiginlega búið að eyðileggja hana, mjög nálægt því. Ég veit að fólk er að gera sitt besta en eigendur fyrirtækisins, sem hafa verið misgóðir í gegnum tíðina og mjög margir, eru, finnst mér, búnir að vinna skemmdarverk á þeirri fréttastofu.“ Ætlar að sjá hvort það sé eitthvað í pennanum Nú þegar Haukur er hættur störfum ætlar hann að elta gamla drauminn sem varð til þess að hann leiddist út í blaðamennsku og reyna fyrir sér sem skáld. „Ég hef alltaf verið að skrifa ljóð og texta, smásögur og verið að reyna mig við lengri sögur en yfirleitt lent á vegg.“ „Núna hef ég tíma og aðstöðu til að sjá hvort það sé eitthvað þarna að hafa, hvort það sé eitthvað í pennanum.“ Haukur Holm fyrrverandi fréttamaður segist hafa verið dálítið villtur en þó alltaf góður strákur. Hann hafði rómantískar hugmyndir um að verða skáld en sá fyrir sér að erfitt yrði að lifa á þeim skrifum og fór í blaðamennsku sem hann sinnti í 40 ár. Rætt var við Hauk Holm í Mannlega þættinum á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article