Innlent | Morgunblaðið | 2.5.2026 | 7:17 Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Frumvarp Rósa lagði fram frumvarpið ásamt sjö þingmönnum úr röðum Sjálfstæðisflokksins. Hún segir að hljómgrunnur sé fyrir breytingunni. Morgunblaðið/Karítas Setja bókamerki Tími er kominn á að afnema erfðafjárskatt að sögn Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins en hún hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis. „Mér hefur lengi þótt þetta mjög óréttlát tvísköttun á fólk og maður hefur spurt sig hvers vegna eigi að skattleggja sömu tekjurnar tvisvar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát,“ segir Rósa í samtali við Morgunblaðið. Tíu ríki OECD felldu skattinn Erfðafjárskattur á sér langa sögu hér á landi en hann var tekinn upp samkvæmt tilskipun konungs árið 1792. Nú til dags er erfðafjárskattur 10 prósent af skattstofni dánarbús. Af öllum fjárverðmætum er við skipti á dánarbúi manns hverfa til erfingja hans skal greiða skatt í ríkissjóð , segir í fyrstu grein laga um erfðafjárskatt. Í greinargerð frumvarpsins segir að tíu ríki innan OECD hafi fellt erfðafjárskatt brott úr lögum sínum, meðal annars Noregur og Svíþjóð. „Í Svíþjóð og Noregi var þessi skattur afnuminn í þverpólitískri samstöðu og reynslan af því hefur verið mjög góð, leitt til einföldunar á kerfinu og dregið úr skattaundanskotum,“ segir Rósa. „Ég held að það sé komið að því að við förum þessa sömu leið og ég hef fulla trú á því að það náist sátt um það.“ Hún kveðst skynja það að hljómgrunnur sé fyrir breytingunum í þingheimi. Ekki um tekjutap að ræða Skatturinn færir ríkissjóði um 10-12 milljarða á ári en sú upphæð er þó breytileg milli ára. Rósa segir að í breytingunum felist ekki eiginlegt tekjutap. „Maður á ekki að líta á þetta sem einhverja tekjulind fyrir ríkissjóð. Það er búið að skattleggja þessar tekjur einu sinni og því bara réttlætismál að það sé ekki verið að margskatta sömu fjármunina,“ segir Rósa. „Það er í rauninni ekkert nema græðgi af hálfu ríkisins að skattleggja þetta svona.“ Breytingarnar muni einfalda kerfið til muna. Afnám erfðafjárskatts Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram frumvarp um afnám skattsins. Lögin tekin upp hér á landi árið 1792. Hljómgrunnur í þingheimi. Finna má fordæmi fyrir afnámi skattsins hjá fjölda ríkja innan OECD. Erfðafjárskattur skilar á bilinu 10-12 milljörðum króna á ári til ríkissjóðs. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vasaþjófarnir snúnir aftur Hefur gaman okkar gránað? Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Héldu upp á 100 ára afmæli Elísabetar Bretlandsdrottningar Ofbeldisfullir á hvaða aldri sem er Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Sýn segir RÚV brjóta lög Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kostir og gallar við ESB-aðild Sendu út mikið viðbragð: Reyndist falskt boð Útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Bensínverð lækkar um 11% Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Farfuglar koma fyrr til landsins Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Vasaþjófarnir snúnir aftur Hefur gaman okkar gránað? Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Héldu upp á 100 ára afmæli Elísabetar Bretlandsdrottningar Ofbeldisfullir á hvaða aldri sem er Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farfuglar koma fyrr til landsins Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Stríðsátökum Bandaríkjanna og Írans teljist lokið Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kostir og gallar við ESB-aðild Sendu út mikið viðbragð: Reyndist falskt boð Útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Bensínverð lækkar um 11% Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Farfuglar koma fyrr til landsins Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás