Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Starfs­fólki borgarinnar fjölgað um 23% á tíu árum

  • What: Employment in Reykjavík City increased
  • Impact: No direct security impact
Read Full Article →

Á árinu 2025 störfuðu 9.849 hjá Reykjavíkurborg (A- og B-hluta). Fyrir tíu árum voru stöðugildin 7.994. Á tíu árum hefur stöðugildum hjá borginni því fjölgað um 23%. Á sama tíma hefur íbúum borgarinnar fjölgað um 19%. Obbinn af starfsfólkinu starfar hjá A-hlutanum eða 8.675 manns, þar af eru 4.940 hjá skóla- og frístundasviði og 2.420 á velferðarsviði. Í B-hlutanum starfa flestir hjá Orkuveitu Reykjavíkur eða 677. Þar á eftir kemur Strætó með 134 starfsmenn og Slökkviliðið með 133. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Reykjavíkurborgar. Áhugavert er að sérstaklega er tekið fram að 0 starfi hjá Þjóðarleikvanginum. Sjá einnig Skatt­tekjur hafa aukist um 42% 92,4 milljarðar í laun Rekstrargjöld borgarsjóðs (A-hluta) námu 199,3 milljörðum króna á árinu 2025 og fóru 6,1 milljarð fram úr fjárheimildum. Á árinu 2024 námu rekstrargjöld borgarsjóðs 176,2 milljörðum. Árið 2021 námu rekstrargjöldin 138,2 milljörðum, sem þýðir að þau hafa hækkað um 44% síðan þá. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 8,4 milljarða króna milli ára og var launakostnaður 1,2 milljörðum króna yfir áætlun, sem fyrr er sú hækkun einkum rakin til nýrra kjarasamninga á opinbera markaðnum. Sé breyting á lífeyrisskuldbindingu tekin með nemur hækkunin 19,1 milljarði króna á milli ára sem er 18,4% hækkun. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 3,9 milljarða milli ára og var 1,8 milljörðum yfir fjárheimildum. Sé eingöngu litið til launagreiðslna þá greiddi borgarsjóður 92,4 milljarða króna í laun á síðasta ár samanborið við 86,2 milljarða árið 2024. Nemur hækkunin um 7,2% á milli ára. Áhyggjur af tíðum veikindum Nokkuð er fjallað um starfsmannamál í ársreikningi Reykjavíkurborgar 2025 og sérstaklega hátt veikindahlutfall starfsfólks. Þar segir t.d. að veikindahlutfall skóla- og frístundasviðs hafi verið 7,9% í fyrra. Sé eingöngu litið til leikskólahlutans hafi hlutfallið verið 9,9%. Þá hafi veikindahlutfall hjá velferðarsviði verið 8,3%. „Þessi háu hlutföll kalla á frekari greiningu og aðgerðir. Árangur í að lækka veikindahlutfall gæti skilað verulegum fjárhagslegum ávinningi í rekstri,“ segir í ábendingu frá fjármála- og áhættustýringarsviði borgarinnar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina heild hér .

Share this article