- What: Increase in job applications in the labor market
- Impact: More applicants are applying for each job
Innlent | Morgunblaðið | 1.3.2026 | 21:45 Umsóknum um auglýst störf fjölgar milli ára Ráðningarskrifstofur finna að fleiri umsækjendur eru um hvert starf, en taka fram að mikið framboð er af lausum störfum. mbl.is/Ómar Óskarsson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Atvinnuleysi hefur tekið kipp frá áramótum og sýna mælingar Hagstofunnar 7,3% atvinnuleysi í janúar en það var 4,5% í lok árs 2025. Geirlaug Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Hagvangs segist finna fyrir því að fleiri umsækjendur sæki um hvert starf hjá þeim en þau sjái ekki að auglýstum störfum sé að fækka og finna ekki fyrir samdrætti í verkefnum hjá Hagvangi. „Þegar talað er um kólnun á vinnumarkaði er það fyrst og fremst sýnilegt í hærri atvinnuleysistölum og tengist væntanlega hópuppsögnum undangenginna mánaða. Við sjáum að það eru mörg atvinnutækifæri til staðar en þessar aðstæður geta kallað á að fólk þurfi að vera hreyfanlegra á vinnumarkaði og opnara fyrir því að breyta um starfsvettvang.“ Töluvert framboð af störfum Hún segir að töluvert framboð sé af störfum fyrir fólk sem er að leita sér vinnu og þau sjái töluverða aukningu í innviðauppbyggingu sem tengist m.a. orkumálum og gagnaverum, auk ferðaþjónustu og landeldis. „Þetta eru störf vítt og breitt um landið og alltaf er þörf á starfsfólki í umönnunarstörf og ýmislegt fleira.“ Spurð hvort hún hafi yfirsýn yfir það hvar störfum sé að fækka segir hún atvinnuleysið hafa aukist mest á Reykjanesi, sem tengist þá ferðaþjónustunni, og væntanlega afleidd störf sem tapast þegar heilt flugfélag hverfur af markaði. „Að einhverju leyti er þetta tengt ferðaþjónustu en á sama tíma eru að byggjast upp nýir ferðamannastaðir, ný hótel, gististaðir og afþreying í baðlónum og ýmsu öðru.“ Árið byrjaði með samdrætti Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreðs segir að þau sjái 14% fleiri umsóknir í janúar og febrúar 2026 miðað við sama tímabil árið 2025. „Varðandi stöðuna á markaðnum almennt þá sáum við samdrátt í fjölda auglýsinga í janúar miðað við sama tímabil í fyrra en það hefur verið að snúast við í febrúar og er nú svipað og í febrúar 2025.“ Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir að á sama tíma og atvinnuleysi aukist hratt sé hátt vaxtastig farið að síga verulega í fyrir skuldug fyrirtæki. „Við þurfum að hafa augun vel opin, því það ástand sem er í efnahagslífinu núna er að vaxtastigið er farið að draga þróttinn úr byggingarfyrirtækjum og öðrum aðilum sem fara að halda að sér höndum. Þá mun draga úr uppbyggingu á nýju íbúðarhúsnæði um leið og störf tapast.“ Hefur verulegar áhyggjur Hann segir atvinnuleysistölurnar endurspegla þá tilfinningu stéttarfélaganna vítt og breitt um landið að það þrengi að og mesta böl sem fólk getur lent í fyrir utan heilsubrest er að missa lífsviðurværi sitt. „Venjulegt launafólk er venjulega bara tvo, þrjá launaseðla frá því að lenda í greiðsluerfiðleikum og því skiptir rosalega miklu máli að fólk hafi trygga atvinnu og við höfum því eðli málsins samkvæmt verulegar áhyggjur af þessum tölum sem við sjáum nú birtast.“ Er að snúast í andhverfu sína Vilhjálmur segir að ástandið sé alvarlegt, sem stjórnvöld þurfi að taka alvarlega. „Þau boðuðu verðmætasköpunarhaust en mér sýnist eins og staðan er núna að það sé að snúast upp í andhverfu sína þótt vissulega séu jákvæðir punktar inn á milli og nægir að nefna í því samhengi loðnuvertíðina sem nú stendur yfir og skapar fólki tímabundna atvinnu.“ Fyrirtækin í landinu skulda 7.500 milljarða og segir Vilhjálmur að þessi gríðarlegi fjármagnskostnaður sé íþyngjandi og því skipti máli að vextir hér fari að þokast niður því ástandið sé orðið óásættanlegt. „Vaxtakjör hér þekkjast ekki í einu einasta landi sem við viljum bera okkur saman við og það er orðið löngu tímabært fyrir Alþingi og stjórnvöld í heild sinni að átta sig á því að hér er eitthvað að hvað þessa hluti varðar, þegar við erum með meðaltalsverðbólgu á Íslandi í kringum 5% frá aldamótum og stýrivexti að meðaltali upp á 7%, þá ættu menn að vera fyrir löngu búnir að átta sig á því að það er eitthvað mikið að í okkar kerfi.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spiluðum frábærlega Umsóknum um auglýst störf fjölgar milli ára Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar Hóta að grípa til aðgerða gegn Íran Íslendingarnir fjarlægjast botnsvæðið Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar „Við ætlum að rústa hernum þeirra“ Myndskeið: Íranar fagna falli Khameneis Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Óvæntar vinsældir í netheimum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Spiluðum frábærlega Umsóknum um auglýst störf fjölgar milli ára Leyfir Bandaríkjaher að nýta breskar herstöðvar Hóta að grípa til aðgerða gegn Íran Íslendingarnir fjarlægjast botnsvæðið Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa „Þetta er grafalvarleg staða“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ „Við erum í sambandi við allt okkar fólk“ Óvæntar vinsældir í netheimum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“