- What: Akta reports financial loss in 2025
- Impact: Business performance update
Sjóða- og eignastýringarfyrirtækið Akta sjóðir hf. tapaði 80 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við 49 milljóna króna tap árið 2024. Félagið birti hefur birt ársreikning fyrir árið 2025 á heimasíðu sinni. Rekstrartekjur Akta sjóða drógust saman um 18,6% milli ára og námu 366 milljónum króna. Afkoma félagsins fyrir afskriftir og tekjuskatt var neikvæð um 79 milljónir króna. Í lok síðasta árs voru 14 sjóðir í rekstri Akta. Á síðasta ári bættist við sérhæfður sjóður fyrir fagfjárfesta Akta, Akta Virði slhf. Eignir í stýringu félagsins voru 47,5 milljörðum króna. í lok árs, samanborið við 35,7 milljarða um mitt ár 2025. „Þrátt fyrir að framtíðarhorfur séu metnar góðar, ber að hafa í huga margvíslega óvissuþætti sem tengjast efnahagsþróun bæði innanlands og utan, þar á meðal þróun vaxta og sveiflur á mörkuðum, auk annarra ytri þátta sem kunna að hafa áhrif á rekstur félagsins og sjóði þess til skemmri eða lengri tíma,“ segir í skýrslu stjórnar. „Áhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu eignastýringar innan félagsins, auk þess sem framboð fjölbreyttra sjóða verður áfram í forgrunni.“ Eignir félagsins voru bókfærðar á 754 milljónir króna í árslok 2025 samanborið við 859 milljónir ári áður. Eigið fé nam 668 milljónum króna. Örn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Akta sjóða, er stærsti hluthafi félagsins með 44,6% hlut. Stærstu hluthafar Akta sjóða í árslok 2025 Hluthafi Eignarhlutur Solo Invest (Örn Þorsteinsson) 44,60% Mörk Capital (Fannar Jónsson) 19,99% Kvika banki 18,60% Bergholt eignir (Þórhallur Ásbjörnsson) 9,79% Makkro (Birgir Haraldsson) 3,02% Sporgöngumaður (Davíð Einarsson) 2,00% Vari (Fannar Örn Arnarsson) 2,00%