Vök-Baths ehf., sem rekur er baðlón við Urriðavatn í nágrenni Egilsstaða, gera mjög alvarlegar athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á aðgangseyri að baðlónum úr 11% í 24%. Baðlónið segir að á Austurlandi, þar sem ferðaþjónusta er viðkvæmari yfir vetrarmánuði og heilsársstörf færri, geti áhrifin orðið sérstaklega þung. Breytingin gæti sett í hættu getu þess til að halda úti starfsemi allt árið. „Slíkt væri bein afturför fyrir Austurland og gæti haft mikil domino-áhrif á viðkvæma starfsemi annarra aðila,“ segir í umsögn Vök-Baths um fjármálaáætlun. Sjá einnig Gengur á bak orða sinna um skatta á ferðaþjónustu Skoða að loka lóninu erfiðustu mánuðina Félagið segir að hækkun VSK myndi annað hvort leiða til hærra verðs til gesta eða skerða rekstrargrundvöll baðlónsins ef ekki verður unnt að velta hækkuninni að fullu út í verð. Í báðum tilvikum veikist forsendur heilsársstarfsemi á svæðinu. „Árið 2025 var tap á rekstri VÖK Baths í 5 mánuði ársins, sem endurspeglar þessa miklu sveiflu sem ferðaþjónusta á Austurlandi býr við. Ætla má, að verði hugmyndir um hækkun virðisaukaskatts í 24% að veruleika, þá verði taprekstur í 7 mánuði ársins,“ segir í umsögninni. „Raungerist það, þá verður ekki hjá því komist að taka til alvarlegrar skoðunar hvort rétt sé að loka staðnum yfir a.m.k. 4 erfiðustu mánuði ársins.“ Hefði þýtt 300 milljóna lakari afkomu Í umsögninni er bent á að þegar vinna við uppbyggingu VÖK Baths hófst árið 2013 hafi virðisaukaskattur á aðgangseyri baðlóna verið 0%. Árið 2016 tóku gildi breytingar sem færðu þann aðgangseyri í 11% virðisaukaskattþrep, en sundlaugar og líkamsræktarstöðvar voru áfram - og eru enn - í 0% þrepinu. „Rétt er að upplýsa að frá opnun VÖK Baths (2019, sjö bókhaldsár), er uppsöfnuð afkoma eftir skatta um 260 milljónir króna. Hækkun vsk um 118% (úr 11% í 24%) hefði að öllu öðru óbreyttu þýtt að VÖK Baths hefði verið með 300 milljón króna lakari afkomu, vegna hærri virðisaukaskatts.“ „Bein hækkun á neysluskatti á íbúa Austurlands“ VÖK Baths segir að baðlónið sé eitt af fáum sterkum heilsársstoðum ferðaþjónustu á svæðinu. Um 100 þúsund gestir koma í baðlónið hverju ári og þar af um 60% erlendir gestir. Í dag eru 16 heilsársstörf hjá fyrirtækinu. Bent er á að um það séu um 750 árskortshafar í VÖK Baths sem eru nánast að öllu leyti með parakort. Þessi skattahækkun myndi hækka verð til þeirra um 12%. „Af þessum sökum væri hækkun virðisaukaskatts ekki aðeins hækkun á ferðamenn. Hún væri bein hækkun á neysluskatti á íbúa Austurlands sem hafa fengið nýjan og mikilvægan valkost til afþreyingar í heimabyggð.“