HSBC gjaldfærði 400 milljónir dala, eða um 49 milljarða króna, á fyrsta ársfjórðungi sem breska bankasamstæðan segir tengjast svikastarfsemi (e. fraud-related). Gjaldfærslan tengist fallna lánveitandanum Market Financial Solutions (MFS). Hlutabréfaverð HSBC hefur lækkað um 6% í dag. Markaðsvirði bankans hefur lækkað um 13 milljarða punda í viðskiptum dagsins. Í árshlutauppgjöri sem bankinn birti í morgun kemur fram að hann hafi haft óbeina áhættu vegna tiltekins fjárfestingarfélags í Bretlandi. Samkvæmt heimildum Financial Times er það Atlas SP, sem er í meirihlutaeigu Apollo, en umrætt fjárfestingarfélag sérhæfir sig á lánamörkuðum. Bankar veita oft fyrirtækjum sem reka sérhæfða lánasjóði fjármögnun í gegnum svokallaðar „back levarage“ lánalínur. Þessar lánalínur hafa í för með sér óbeina áhættu fyrir banka gagnvart umræddum fjármálafyrirtækjum. S jóðir Atlas SP voru með um 1 milljarð punda í útistandandi kröfur á tvær rekstrareiningar MFS. Atlas SP hefur sagt að það sé útsett fyrir áhrifum upp á 400 milljónir punda, sem heimildarmaður FT segir endurspegla það tap sem HSBC tók á sig og skuldir sem færðar voru til annarra aðila. Í umfjölluninni segir að 400 milljóna dala tap HSBC þýði að breski bankinn sé sá aðili sem varð fyrir hvað mestum áhrifum af falli MFS. Lánveitendur MFS, sem er sakað um að hafa lagt sömu eignir að veði í tvígang, horfa fram á alls um 1,3 milljarða punda högg.