Svissneski bankahópurinn J. Safra Sarasin Group er orðinn meirihlutaeigandi í danska Saxo Bank og fer nú með 71% hlut, samkvæmt kauphallartilkynningu bankans í morgun sem danska viðskiptablaðið Børsen greinir frá. Með eigendaskiptunum fylgir umfangsmikil endurskipulagning á framkvæmdastjórn og stjórn bankans, þar sem bæði forstjóranum og lykilstjórnendum verður skipt út. Safra Sarasin tilkynnti á síðasta ári að samkomulag lægi fyrir um kaup á um 70% hlut í Saxo Bank með fyrirvara um hefðbundið samþykki eftirlitsaðila. Nú hefur hluturinn verið staðfestur sem 71% og breytingarnar virkjast í kjölfarið. Stofnandinn Kim Fournais lætur af störfum sem forstjóri Saxo Bank og tekur við sem stjórnarformaður. Í hans stað tekur Daniel Belfer, sem hingað til hefur gegnt forstjórastöðu hjá J. Safra Sarasin, við sem nýr forstjóri Saxo Bank, samkvæmt frétt Børsen. Með þessu er rofin sú samfellda stjórnun sem Fournais hefur haldið utan um árabil og svissneski eigandinn fær beina aðkomu að daglegri stjórn bankans með forstjóra úr eigin röðum. Lykilstjórnendur víkja Eigendaskiptin kalla einnig fram breytingar á fleiri lykilstöðum. Søren Kyhl, aðstoðarforstjóri og rekstrarstjóri (COO), lætur af störfum tafarlaust og sömuleiðis John Carmichael, sem hefur verið yfirmaður regluvörslu og áhættustýringar (Chief Compliance and Risk Officer) og setið í æðstu stjórn bankans. Í stað Kyhl tekur Henrik Juel Villberg, sem hefur verið staðgengill rekstrarstjóra og starfað hjá Saxo í meira en tvo áratugi, við sem aðstoðarforstjóri og tekur sæti í framkvæmdastjórn. Samhliða breytingum í framkvæmdastjórn er ráðist í uppstokkun í stjórn bankans. Samkvæmt Børsen stíga nokkrir stjórnarmenn til hliðar og nýir koma inn til næsta aðalfundar, meðal annars einstaklingar tengdir nýja meirihlutaeigandanum, auk þess sem Kim Fournais tekur við sem stjórnarformaður. Vilja starfrænu innviðina ekki fólkið Børsen hefur áður fjallað um að einn stærsti drifkraftur áhuga Safra Sarasin á Saxo Bank hafi verið aðgangur að starfrænum innviðum bankans, sem eru byggðir upp fyrir verðbréfaviðskipti, gjaldeyri og afleiður. Safra Sarasin hefur lengi verið í einkabankaþjónustu og eignastýringu en Saxo er þekkt fyrir viðskipta- og fjárfestingakerfi sitt, sem þjónar bæði smærri fjárfestum og fagfjárfestum. Það fellur að áherslum sem komu fram þegar aðilarnir greindu fyrst frá samkomulagi um meirihlutakaup, þar sem markmiðið var meðal annars að styrkja langtímavaxtarmöguleika með samlegð milli einkabankaþjónustu og stafrænnar fjárfestinga- og viðskiptatækni.