Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Farþegum Icelandair fjölgaði um 5% í apríl

Read Full Article →

Icelandair flutti 402 þúsund farþega í apríl, sem er 5% fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Af farþegum mánaðarins voru 28% á leið til Ís­lands, 20% frá Ís­landi, 46% tengi­farþegar og 6% ferðuðust innan­lands. Mest fjölgun var á heima­markaðnum. Farþegum frá Ís­landi fjölgaði um 16% milli ára og innan­lands­farþegum um 7%. Sætanýting var 82,2% í apríl og hækkaði um 1,2 pró­sentu­stig milli ára. Fram­boð félagsins jókst á sama tíma um 5%. Stund­vísi var 80,8%, en Icelandair segir slæmt veður á Ís­landi í upp­hafi mánaðar hafa haft áhrif á hana. Dregur úr fram­boði Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair, segir ánægju­legt að sjá áfram­haldandi háa sætanýtingu og fjölgun farþega, sér­stak­lega á leiðinni frá Ís­landi. „Eins og undan­farna mánuði jókst fram­boð á milli ára, í takt við áherslur okkar á að minnka ár­stíða­sveiflu í rekstrinum. Í sumar gerum við ráð fyrir að fram­boð verði lítið eitt minna en í fyrra,“ segir Bogi. Hann segir að í ljósi átaka í Mið-Austur­löndum og snarpra hækkana á elds­neytis­verði hafi félagið gripið til mót­vægisað­gerða. Þær felist meðal annars í áfram­haldandi kostnaðaraðhaldi, hækkun far­gjalda og 2% sam­drætti í flug­fram­boði á öðrum árs­fjórðungi, eins og áður hafi verið til­kynnt. „Að auki höfum við hafið vinnu við að draga fram­boðið saman um um það bil 5% í haust,“ segir Bogi. Frekari aðlögun á flugáætlun sé til skoðunar. Þar á meðal sé mögu­leg ákvörðun um að flýta út­fösun Boeing 757-véla, sem eru ekki jafn spar­neytnar og nýrri flug­véla­tegundir. Losun minnkar á tonn­kíló­metra Kol­efnislosun Icelandair á hvern tonn­kíló­metra dróst saman um 3% í apríl. Félagið segir það skýrast af aukinni nýtingu spar­neytnari flug­véla. Seldum blokktímum í leigu­flugi fækkaði um 1% milli ára. Frakt­flutningar, mældir í tonn­kíló­metrum, drógust saman um 8%, sem Icelandair segir skýrast af minna fram­boði af frakt í farþega­leiða­kerfinu til og frá Bandaríkjunum. Bogi bendir einnig á að Icelandair hafi fengið fern verð­laun í apríl fyrir þjónustu og vöru­fram­boð um borð á On­board og Tra­velPlus-verð­launa­hátíðunum. Þá hafi ný aug­lýsinga­her­ferð félagsins náð til 22 milljóna manna um allan heim.

Share this article