Farþegum Icelandair á leið til Íslands fjölgaði um 20% í febrúar frá fyrra ári og farþegum frá Íslandi fjölgaði um 19%.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Icelandair hefur aldrei flutt eins marga farþega í febrúar og í nýliðnum mánuði þegar þeir voru 289 þúsund. Það er 15% fjölgun frá fyrra ári. 42% farþega voru á leið til landsins en 21% frá því. 30% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust í innanlandsflugi. Sætanýting var nærri 80% og stundvísi var 88,9%. Í tilkynningu er haft eftir Boga Nils Bogasyni að ánægjulegt sé að sjá áframhaldandi árangur af áherslum á vöxt yfir vetrartímann. „Þetta styður vel við markmið okkar um að draga úr árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta sveigjanleika leiðakerfisins til þess að auka framboð á þeim mörkuðum sem skila mestri framlegð hverju sinni.“