Icelandair flutti 289 þúsund farþega í febrúar 2026, 15% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Sætanýting var 79,9% og stundvísi var 88,9%, samkvæmt tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar. Í mánuðinum voru 42% af farþegum Icelandair á leið til Íslands, 21% frá Íslandi, 30% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands. Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 20% og farþegum frá Íslandi um 19% „í takt við áherslur sem félagið hefur lagt á þessa markaði“. Tekjur á hvern farþegakílómetra í febrúar jukust um 10% milli ára, úr 7,99 sentum í 8,82 sent. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að breytt samsetning farþega milli markaða eigi stærstan þátt í þessari hækkun milli ára. Mynd tekin úr tilkynningu Icelandair. „Við höfum aldrei flutt jafn marga farþega í febrúar en náðum jafnframt metárangri í sætanýtingu og stundvísi, þrátt fyrir óvænta röskun á flugi vegna veðurs undir lok mánaðar,“ segir Bogi Nils . „Það er mjög ánægjulegt að sjá áframhaldandi árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þetta styður vel við markmið okkar um að draga úr árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta sveigjanleika leiðakerfisins til þess að auka framboð á þeim mörkuðum sem skila mestri framlegð hverju sinni.“ Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 26% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 2% á milli ára. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4%.