Arion banki kannar nú hvort selja eigi Blikastaðaland í heild eða að hluta, fá meðfjárfesta að verkefninu eða setja það í farveg sem gæti leitt til skráningar. Fyrsti áfangi deiliskipulags svæðisins er nú tilbúinn, en þar er gert ráð fyrir 1.260 íbúðum. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu Arion banka vegna uppgjörs fyrsta ársfjórðungs. Þar segir að bankinn hafi leitt þróun Blikastaðalands í gegnum dótturfélagið Blikastaðaland ehf., sem er alfarið í eigu bankans, í nánu samstarfi við Mosfellsbæ. Fyrsti áfangi deiliskipulagsins er nú frágenginn og segir Arion að með því hafi mikilvægum áfanga verið náð í verkefninu. Fyrsti áfanginn er einn af þremur og gerir ráð fyrir 1.260 íbúðum. Þar af verða 1.055 íbúðir í fjölbýlishúsum, 88 íbúðir í fjórbýlishúsum, 53 í raðhúsum, 34 í parhúsum og 30 í einbýlishúsum. Í kynningunni segir að fyrsti áfanginn sé nú orðinn tilbúið íbúðaverkefni fyrir fjárfesta. Þá leggur bankinn áherslu á að fjölbreytt samsetning íbúða eigi að mæta breiðri eftirspurn á húsnæðismarkaði. Arion segir að áherslan til þessa hafi verið á skipulagsvinnu og að draga úr áhættu verkefnisins, fremur en að selja það hratt. Með því hafi bankinn skapað sér aukið svigrúm til lengri tíma. Teikning af atvinnukjarna Reita á Blikastöðum © Aðsend mynd (AÐSEND) Nú sé bankinn hins vegar farinn að skoða næstu skref. Í kynningunni segir að til skoðunar sé að selja hluta verkefnisins, selja það í heild eða fara í samstarf við aðra fjárfesta. Slíkt samstarf gæti að sögn bankans falið í sér fyrirkomulag sem yki seljanleika hluta í verkefninu, meðal annars með skráningu. Ákvörðun um framhaldið verður samkvæmt kynningunni tekin út frá hagsmunum hluthafa, markaðsaðstæðum og því hvernig best sé að nýta efnahagsreikning og eigið fé bankans. Blikastaðaland er ein stærsta þróunareign Arion banka. Í árshlutareikningi bankans kemur fram að fjárfestingareignir hans námu 7,4 milljörðum króna í lok mars, samanborið við 7,3 milljarða króna í árslok. Blikastaðalandið. © Trausti Hafliðason (VB) Þar kemur jafnframt fram að fjárfestingareignir séu færðar á gangvirði og að breytingar á virði þeirra fari í gegnum rekstrarreikning bankans. Blikastaðir voru einnig nefndir sérstaklega meðal helstu rekstrarlegra tíðinda Arion á fyrsta fjórðungi. Í sömu kynningu kom fram að bankinn hefði lokið sölu á þróunareigninni Arnarlandi á fjórðungnum.