Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íransstríðið hefur ekki dregið úr skyndibitasölu

This article does not describe a technical vulnerability, threat, or security incident; it is a business news report discussing consumer spending at fast-food restaurants despite rising fuel prices. Therefore, a technical security summary containing CVSS scores, affected versions, or mitigation steps cannot be provided from this source.
Read Full Article →

Þrátt fyrir mikla hækkun á olíuverði hafa bandarískir neytendur ekki dregið úr heimsóknum sínum á skyndibitastaði. Á vef New York Times segir að fjöldi stórra skyndibitaveitingakeðja hafi birt sterkar uppgjörstölur fyrir fyrsta ársfjórðung. McDonald‘s greindi frá því í dag að sala á veitingastöðum keðjunnar í Bandaríkjunum hefði aukist um 3,9% og að sala á heimsvísu hefði aukist um 3,8%. Fjárfestar og greinendur hafa undanfarnar vikur haft áhyggjur af því að hækkandi eldsneytisverð vegna stríðsins í Íran myndi draga úr neyslu og þá sérstaklega meðal tekjulægri heimila. Sjá einnig Tilboðsmáltíðir McDonald‘s skila sér í sölutölum Afkoma McDonald‘s var hins vegar góð og greindu aðrar skyndibitakeðjur á borð við Taco Bell og Burger King frá svipaðri söluaukningu. Tölurnar benda til þess að hækkandi eldsneytiskostnaður hafi ekki dregið úr veitinganeyslu meðal almennings í Bandaríkjunum. Heildartekjur McDonald‘s jukust þá um 9% og námu 6,5 milljörðum dala á fyrsta ársfjórðungi þess árs. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta jókst sömuleiðis um 6% og nam tæplega tveimur milljörðum dala.

Share this article