- What: Aurbjarg and Auði collaborate to simplify loan application process
- Impact: Improved user experience for loan applicants
Aurbjörg hefur hafið samstarf við Auði, dótturfélag Kviku, um einfaldara og skilvirkara endurfjármögnunarferli fyrir húsnæðislán. Með samstarfinu geta notendur Aurbjargar nú byrjað umsóknarferli húsnæðislána Auðar beint í gegnum vef Aurbjargar. Markmið samstarfsins er að einfalda og stytta lántökuferlið fyrir neytendur og færa fjármálaþjónustu nær notendum. Í tilkynningu segir að notendur geti til að mynda borið saman lán út frá sínum forsendum, séð hvaða kostir henta best og sótt um endurfjármögnun húsnæðislána hjá Auði. Jafnframt munu notendur geta fylgst með stöðu umsóknar bæði inni á vef Aurbjargar og Auðar. „Við sjáum að notendur vilja geta farið úr upplýsingum yfir í aðgerðir á einum stað þar sem þeir hafa yfirsýn yfir stöðuna sína. Við erum að byggja upp lausn sem styður fólk í að taka betri fjármálaákvarðanir og einfaldar leiðina að þeim og er þetta samstarf mikilvægt skref í þá átt,“ segir Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri Aurbjargar. Samstarfið er sagt vera fyrsta skref í að byggja upp vettvang sem einfaldar samskipti milli neytenda og fjármálafyrirtækja og er það markmið Auðar að bjóða upp á hagstæð kjör sem hjálpa fólki að eignast meira í sínu íbúðarhúsnæði. „Viðtökurnar við innkomu Auðar á húsnæðislánamarkaðinn hafa verið frábærar og með samstarfinu við Aurbjörgu hvetjum við enn fleiri til að huga að endurfjármögnun fyrr en seinna enda ekki eftir neinu að bíða með að hefja eignamyndun með hagstæðum óverðtryggðum lánum,“ segir Halldór Snæland, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hjá Kviku banka.