Innlent | mbl | 12.5.2026 | 15:50 Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Andri segir að það sem Magnús telji vera góðmennsku sé í raun grimmd. mbl.is/Hari Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára » Fleiri tengdar fréttir Framhaldsskólakennarinn Andri Þorvarðarson segir Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands, enn og aftur reyna að þagga niður í þeim sem eru óánægðir og gagnrýna menntakerfið. Hann segir það sem Magnús telji vera góðmennsku í raun vera grimmd. Andri stingur niður penna í skoðanagrein á Vísi þar sem hann fer yfir viðbrögð sem hann fékk í kjölfar skoðanapistils um stöðu menntakerfisins eftir umfjöllun Morgunblaðsins um bága stöðu þess. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Andri að djúp gjá hefði myndast á milli menntaforystunnar og kennara sem starfa á gólfinu í skólum landsins, þar sem kennarar sjái þróunina berum augum. Frétt af mbl.is Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu Andri segir að með þessu sé Magnús í krafti stöðu sinnar að láta kennara landsins vita að raunveruleg gagnrýnin umræða um skólakerfið eða menntaforystuna sé ekki vel þegin. mbl.is/Hari Málflutningur sem standist ekki skoðun Í grein sinni í dag segir Andri að síðastliðinn föstudag hafi Magnús sent fjölpóst til kennara landsins vegna aukinnar umfjöllunar um skólamál. Þar sagði Magnús að mikilvægt væri að raddir kennara heyrðust og að kennaraforystan yrði ekki viðkvæm fyrir umræðunni. Á sama tíma sagði Magnús að umræðan mætti ekki þróast í þá átt að verða keppni um niðurrif eða að afmarkaðir þættir tækju yfir umræðuna þar sem úr yrði „keppni í fyrirsögnum“, eins og hann orðaði það. Þá varaði Magnús einnig við orðræðu sem kynni að skaða aðstæður nemenda. „Þarna má sjá enn og aftur hvernig menntaforystan reynir að þagga niður í óánægjuröddum með því að saka gagnrýnismenn um niðurrif og að tala menntakerfið niður,“ skrifar Andri og heldur áfram: „En þessi málflutningur stenst ekki skoðun. Er heilbrigðisstarfsfólk þá að stunda niðurrifsstarfsemi þegar það segir frá neyðarástandi á bráðamóttökunni? Erum við að tala niður vegakerfið okkar þegar bent er á að vegirnir séu holóttir?“ Frétt af mbl.is Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Andri hefur miklar áhyggjur af stöðu skólakerfisins. Samsett mynd Raunveruleg gagnrýni afþökkuð Andri segir að með þessu sé Magnús í krafti stöðu sinnar að láta kennara landsins vita að raunveruleg gagnrýnin umræða um skólakerfið eða menntaforystuna sé ekki vel þegin. „Er nokkuð furða að kennarar veigri sér við því að tjá óánægju sína á opinberum vettvangi þegar skilaboðin frá forystunni eru á þessa leið?“ segir Andri og bætir við að til þessa hafi kennarar látið gremju sína í ljós á kaffistofum skólanna. Hann telur að breytingar séu að verða þar á vegna ástandsins í skólakerfinu auk þess sem „afneitun og hroki menntaforystunnar“ sé orðin það megn. Frétt af mbl.is Nemendum með A stórfjölgar milli ára Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Hákon Grimmd að nemendur vita ekki hvar þau standa Andri heldur áfram og segir að Magnús og málsvarar hans telji sig vera að sýna góðmennsku gagnvart nemendum og kennurum með því að verja núverandi kerfi. Andri telur það vera þveröfugt. „En það sem þetta fólk kallar góðmennsku álít ég vera grimmd. Það er grimmd að telja það sjálfsagt að nemendur fái ekki að vita hvar þeir standi í raun og veru. Að nemendur sem kunna varla að lesa fái B í íslensku. Að ungt fólk geti ekki látið drauma sína rætast því það fékk ekki námsaðstoð við hæfi.“ Hann segir tíma til kominn að kennarar og foreldrar láti í sér heyra og láti skólaforystuna vita að ef hún er ekki reiðubúin til að takast á við breytingar sé kominn tími til að skipta um forystu. „Þegar fólk reisir sér skýjaborgir þá er best að kippa því aftur niður á jörðina,“ segir Andri að lokum. Frétt af mbl.is Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekkert pláss fyrir Börsunginn í HM-hópi Svía Sundhöllin læst í mánuð: Sjö laugum lokað í sumar Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Ancient Icelandic manuscripts arrive from Sweden Vilja 14 milljarða fyrir miðjumanninn Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðræðum um Grænland miðar vel Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Umræðan vekur ugg meðal lækna Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Ekkert pláss fyrir Börsunginn í HM-hópi Svía Sundhöllin læst í mánuð: Sjö laugum lokað í sumar Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Ancient Icelandic manuscripts arrive from Sweden Vilja 14 milljarða fyrir miðjumanninn Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fylgjast vel með hantaveirunni Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu brjálæðinga“ Varar við verktöfum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Umræðan vekur ugg meðal lækna Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið